
Samherji Fiskeldi
Nýr og glæsilegur Eldisgarður Samherja Fiskeldis er nú að rísa í Auðlindagarðinum á Reykjanesi. Verkefnið er að fullu fjármagnað og þar verður árlega framleiddur allt að 40.000 tonna hágæða lax, með nýjustu tækni sem völ er á í sjálfbæru fiskeldi.
Um er að ræða framsækið og umhverfisvænt framtak sem mun skapa fjölda framtíðarstarfa á svæðinu – og nú er tækifærið þitt til að vera með frá byrjun.
Verkefnið mun skapa einstök tækifæri til fullnýtingar orkustrauma m.a. frá jarðvarmavirkjunum á Reykjanesi.
Markmið verkefnisins er að framleiða lax með lágt vistspor með hringrásarhagkerfið að leiðarljósi. Allt framleiðsluferlið verður á sama stað, frá innsetningu hrogna að fullunnum hágæðaafurðum.
Samherji Fiskeldi hefur verið stórframleiðandi á laxi og bleikju í yfir 20 ár og rekur eingöngu landeldisstöðvar.
Umsjónarmaður flutninga (Logistic Coordinator)
Vilt þú vera hluti af framtíðinni í íslensku landeldi?
Við leitum að öflugum og lausnamiðuðum umsjónarmanni flutninga til að taka þátt í uppbyggingu og rekstri nýs og glæsilegs landeldis sem nú rís í Auðlindagarðinum á Reykjanesi.
Sem umsjónarmaður flutninga berð þú ábyrgð á samhæfingu flutninga, dreifingu efna og mannafla á verkstað.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Samhæfa flutninga aðfanga og mannafla á verkstað.
- Skipuleggja og hafa umsjón með flutningi á efni og búnaði.
- Stýra birgðastöðu og aðgengi að efni á verkstað.
- Skipuleggja aðkomu, öryggisferla og úrgangsstjórnun.
- Skjalagerð vegna innflutnings og tollameðferðar.
- Umsjón með móttöku og skráningu tækja og búnaðar til verksins.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Hefur menntun sem nýtist í starfi.
- Hefur reynslu af skipulagningu flutninga eða verkstaðastjórnun.
- Er lausnamiðaður, skipulagður og getur unnið sjálfstætt.
- Hefur góða tölvukunnáttu og færni í skjalavinnslu.
- Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli.
Advertisement published13. June 2025
Application deadline29. June 2025
Language skills

Required

Required
Location
Auðlindagarðurinn á Reykjanesi
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (10)

Aðstoðarverkefnisstjóri rafkerfa (Assistant Project Manager Electricity)
Samherji Fiskeldi

Verkefnisstjóri verkstaðar (Site Administrator)
Samherji Fiskeldi

Verkefnastjóri rafkerfa (Project Manager Electricity)
Samherji Fiskeldi

Verkefnastjóri bygginga (Project Manager Civil Work)
Samherji Fiskeldi

Umsjónarmaður vöruhúss og geymslusvæða (Warehouse Manager)
Samherji Fiskeldi

Samræmingaraðili teikninga (Drawing Coordinator)
Samherji Fiskeldi

Aðstoðarmaður (Assistant)
Samherji Fiskeldi

Aðstoðarverkefnisstjóri vélbúnaðar (Assistant Project Manager Mechanical)
Samherji Fiskeldi

Aðstoðarverkefnastjóri hönnunar (Project Engineer/Design Coordinator)
Samherji Fiskeldi

Innkaupafulltrúi (Procurement assistant)
Samherji Fiskeldi
Similar jobs (12)

Verkefnisstjóri verkstaðar (Site Administrator)
Samherji Fiskeldi

Umsjónarmaður vöruhúss og geymslusvæða (Warehouse Manager)
Samherji Fiskeldi

Innkaupafulltrúi (Procurement assistant)
Samherji Fiskeldi

Verkstjóri tengivirkjateymis
Landsnet hf.

Útkeyrsla/lagerafgreiðsla
Íspan Glerborg ehf.

Bílstjóri í flotdeild
Steypustöðin

Starf á lager
Fastus

Innkaupafulltrúi
Hilton Reykjavík Nordica

Meiraprófsbílstjóri á bílaflutninga- og björgunarbíla.
Krókur

Bílstjóri með C1 réttindi
Flutningaþjónustan ehf.

Öflugur bílstjóri óskast - sumarstarf
Aðföng

Flutningabílstjóri hjá Steypustöðinni
Steypustöðin