
Lota
Lota er framsækið þekkingar- og þjónustufyrirtæki á sviði verkfræði og ráðgjafar. Stofuna má rekja allt til ársins 1960 og sú reynsla sem skapast hefur í gegnum árin endurspeglast í þeim lausnum og þjónustu sem við veitum stórum hópi viðskiptavina okkar úr einkageiranum sem og hinu opinbera. Við erum blandaður hópur af góðu fólki sem finnst skemmtilegt að veita einfaldar, áreiðanlegar og skýrar lausnir fyrir viðskiptavini okkar.
Lota hefur vaxið frá því að vera lítil sérhæfð rafmagnsverkfræðistofa yfir í framsækið þjónustufyrirtæki. Starfsemin tengist enn raforkumálum svo sem flutningi, dreifingu og framleiðslu, auk þess sem Lota þjónustar stóra viðskiptavini í ferðaþjónustu, iðnaði og viðkvæmum rekstri á borð við spítala og gagnaver. Lota býr yfir mikilli þekkingu og reynslu í flóknum iðnstýringum, loftræsti -og kælikerfum, bruna- og öryggishönnun. Þá hafa mörg verkefni Lotu verið í áætlanagerð, fýsileikagreiningum, verkefnaþróun og verkefnastýringu.

Sérfræðingur í brunahönnun
Við hjá Lotu leitum að liðsauka í frábæra brunateymið okkar sem vinnur að skemmtilegum og fjölbreyttum verkefnum. Við leitum að einstaklingi með góða tækniþekkingu, sjálfstæði í vinnubrögðum og hæfni til að vinna náið með samstarfsfólki við lausn verkefna. Við bjóðum upp á gott starfsumhverfi og frábæran starfsanda þar sem starfsánægja skorar hátt.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hönnun brunavarna
- Útreikningar og áhættugreiningar
- Gerð viðbragðs- og rýmingaráætlana
- Gerð reiknilíkana
- Verkefnastjórn og ráðgjöf
- Skoðanir og úttektir á brunavörnum
- Þátttaka í verkefnaöflun og tilboðsgerð
Menntunar- og hæfniskröfur
-
Viðeigandi menntun á sviði verk- eða tæknifræði
-
Reynsla af brunahönnun
- Lausnamiðuð og sjálfstæð vinnubrögð
Fríðindi í starfi
Við bjóðum upp á frábært samstarfsfólk
Tækifæri til þróunar og fræðslu
Samgöngustyrk, íþróttastyrk og stuðning við andlega heilsu
Sveigjanlegan vinnutíma
Advertisement published12. June 2025
Application deadline3. July 2025
Language skills

Required

Required
Location
Guðríðarstígur 2-4 4R, 113 Reykjavík
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Aðstoðarverkefnisstjóri rafkerfa (Assistant Project Manager Electricity)
Samherji Fiskeldi

Verkefnastjóri rafkerfa (Project Manager Electricity)
Samherji Fiskeldi

Flotastjóri & Mælingamaður
Fagurverk

Áreiðanleikafræðingur
Norðurál

Yfirverkfræðingur rafveitu
Norðurál

Verkstæðismaður
Teitur

Uppsetning og viðhald á sjálfvirkum búnaði.
Járn og Gler hf

Tæknimaður,viðgerðir,þjónusta Elevator/Installer/Technician
Íslandslyftur ehf

Verkefnastjóri framkvæmda
Borealis Data Center ehf.

Tæknimaður
Brafa ehf.

Starf í viðhaldsdeild
First Water

Sérfræðingur í bílabreytingum fyrir fatlað fólk
Öryggismiðstöðin