

Starf í viðhaldsdeild
Við leitum að iðnmenntuðum og/eða handlögnum einstaklingi í framtíðarstarf í viðhaldsdeild félagsins. Starfstöðin er á Laxabraut í Þorlákshöfn.
Á næstu mánuðum og árum er mikið framundan hjá First Water. Á svæðinu á sér stað mikil uppbygging og samhliða henni fer fram uppsetning og gangsetning á búnaði, auk viðhalds á þeim kerfum sem þegar eru komin í rekstur.
Um er að ræða frábært tækifæri til að taka þátt í spennandi verkefni þar sem verkefnin eru bæði fjölbreytt og áhugaverð. Mikil tækifæri til að þróast í starfi og bæta við sig þekkingu.
First Water leggur áherslu á faglega viðhaldssjórnun og kemur viðkomandi til með að fá tækifæri til að taka þátt í þróun og uppbyggingu á viðhaldsstjórnunarkerfi.
Í fiskeldisstöð félagsins er margvíslegur véla- og tæknibúnaður sem krefst viðhalds og þjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almennt viðhald á búnaði stöðvarinnar, þ.m.t. dælubúnaði, hreinsibúnaði, fóðurbúnaði og eldiskerfum
- Þátttaka í gangsetningum á fjölbreyttum búnaði og kerfum
- Vinna við þróun og uppbyggingu á viðhaldsstjórnunarkerfi
Menntunar og hæfniskröfur
- Iðnmenntun sem nýtist í starfi, t.d. vélvirkjun/bifvélavirkjun eða reynsla af viðgerðum
- Skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
- Frumkvæði í starfi og umbótahugsun
Nánari upplýsingar veitir Árni Viggó Sigurjónsson, viðhaldsstjóri, [email protected]
First Water er framsækið íslenskt nýsköpunarfyrirtæki sem vinnur að uppbyggingu laxeldis á landi, og nýtir til þess náttúruauðlindir Íslands á sjálfbæran hátt. Lykillinn að velgengni félagsins mun liggja í mannauði þess og leggur félagið því ríka áherslu á öflugan hóp reynslumikils og drífandi starfsfólks.











