Hveragerðisbær
Hveragerðisbær

Verkefnastjóri menntunar, menningar- og lýðheilsusviðs

Hveragerðisbær óskar eftir að ráða öflugan og lausnamiðaðan verkefnastjóra á mennta-, menningar- og lýðheilsusvið. Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem reynir á skipulagshæfni og hæfni til að vinna með og leiða ólíka hópa. Viðkomandi tekur þátt í þróun þjónustu og kemur að stefnumótunar- og umbótaverkefnum. Um er að ræða tímabundna ráðningu til 12 mánaða með möguleika á áframhaldandi ráðningu að þeim tíma loknum. Um er að ræða tímabundna ráðningu til 12 mánaða með möguleika á áframhaldandi ráðningu að þeim tíma loknum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Verkefnastýring, skipulagning og eftirfylgni fjölbreyttra verkefna
  • Þátttaka í uppbyggingu, þróun og umbótastarfi sviðsins
  • Kortlagning, greining og þróun verkefna, þjónustu og starfshátta
  • Þátttaka í mótun og innleiðingu verkferla og verklags
  • Gagnaöflun, úrvinnsla upplýsinga og gerð samantekta
  • Skipulagning, framkvæmd og kynning á ýmsum verkefnum sem tengjast sviðinu
  • Samstarf við stjórnendur, starfsfólk og utanaðkomandi samstarfsaðila
  • Þátttaka í starfshópum og þverfaglegum verkefnum sveitarfélagsins

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af verkefnastjórnun
  • Þekking eða reynsla af stefnumótun, nýsköpun eða umbótastarfi
  • Góð greiningar- og skipulagshæfni
  • Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni
  • Hæfni til að vinna sjálfstætt og sýna frumkvæði
  • Þekking á starfsemi sveitarfélaga og málaflokkum sviðsins er mikilvæg
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni í að miðla upplýsingum

Umsóknarfrestur er til og með 7. desember 2026.

Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Thelma Kristín Kvaran ([email protected]).

Advertisement published18. November 2026
Application deadline7. December 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Breiðamörk 20
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Analytical skillsPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Business strategyPathCreated with Sketch.Project management
Professions
Job Tags