Orkuvirki
Orkuvirki
Orkuvirki

Hefur þú reynslu af að leiða tæknileg verkefni og halda utan um fólk, framvindu og fjármál?

Orkuvirki leitar að reynslumiklum verkefnastjóra í fullt starf. Þú leiðir verkefni frá undirbúningi til verkloka og fylgir því eftir að umfang, gæði, öryggi, tími og kostnaður haldist í hendur.

Við leitum að einstaklingi sem sér heildarmyndina, tekur á málum tímanlega og skapar skýrleika í samstarfi við viðskiptavini og verkefnateymi.

Í starfinu heldur þú utan um skipulag og framkvæmd verkefna, samræmir framlag ólíkra sviða og tryggir markvissa eftirfylgni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Rýna verkgögn og undirbúa verkefni
  • Gera tíma-, kostnaðar- og aðfangaáætlanir og fylgja þeim eftir
  • Samræma vinnu verkefnateymis, birgja og undirverktaka
  • Annast samskipti við viðskiptavini og aðra hagaðila
  • Fylgjast með fjármálum verkefna, breytingum og aukaverkum
  • Samræma hönnunargögn og tæknilegar úrlausnir
  • Fylgja eftir kröfum um gæði, vinnuvernd og umhverfismál
  • Halda utan um afhendingu, lokagögn og uppgjör verkefna
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun í verkfræði, tæknifræði eða iðnfræði á sviði rafmagns, véla og orku eða iðnðaðar. Viðbótanám í verkefnastjórnun er kostur.
  • Reynslu af stjórnun og framkvæmd tæknilegra verkefna
  • Þekkingu á áætlanagerð, samningum, breytingastjórnun og uppgjöri verkefna
  • Færni í að vinna með tæknigögn, teikningar og verklýsingar
  • Leiðtogahæfni og getu til að samræma vinnu þvert á svið
  • Góðan skilning á kostnaði, áhættu og áhrifum ákvarðana
  • Skipulagshæfni, samningafærni og getu til að leysa úr ágreiningi
  • Gild ökuréttindi
  • Hreint sakavottorð
  • Góða íslensku- og enskukunnáttu
Fríðindi í starfi

·      Frábær starfsandi og öflugt teymi

·      Fjölbreytt og krefjandi verkefni

·      Traust og sjálfstæði í starfi

·      Tækifæri til að vaxa í starfi

·      Sveigjanlegan vinnutíma

·      Niðurgreiddan hádegisverð

·      Íþróttastyrkur

Advertisement published18. November 2026
Application deadline6. December 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Tunguháls 3, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Project management
Work environment
Professions
Job Tags