

Þjónustufulltrúi framtíðarstarf/sumarstarf
Við leitum að jákvæðum og lausnamiðuðum þjónustufulltrúa til að þjónusta viðskipavini PLAY í samræmi við þjónustustefnu flugfélagsins. Viðkomandi verður hluti af sterkri liðsheild þar sem teymisvinna og samskiptahæfileikar eru lykilatriði.
PLAY leggur áherslu á rafrænar lausnir og rafræn samskipti og því er mikilvægt að viðkomandi búi yfir framúrskarandi færni í ritaðri ensku og íslensku.
Við erum að leita af einstaklingum í fullt starf. Um er að ræða vaktavinnu þar sem unnið er á 2-2-3 vaktakerfi, vinnutími er frá 08:00-20:00.
Þjónustuteymi PLAY samanstendur af hressum og skemmtilegum einstaklingum sem eiga það öll sameiginlegt að hafa gaman að samskiptum við fólk. Við leggjum mikla áherslu á góðan starfsanda og erum dugleg að gera okkur glaðan dag.
Byrjað verður að fara yfir umsóknir um leið og þær berast.
- Þjónusta og samskipti við viðskipavini í gegnum tölvupóst, netspjall og samfélagsmiðla
- Úrvinnsla á farþegakröfum
- Tryggja að unnið sé í samræmi við þjónustustefnu PLAY
- Upplýsingagjöf til viðskiptavina
- Samskipti við aðrar deildir innan PLAY
- Önnur tilfallandi verkefni í samráði við yfirmann
- Menntun og/eða starfsreynsla sem nýtist í starfi
- Framúrskarandi þjónustulund, sveigjanleiki og lausnamiðuð nálgun
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
- Góð almenn tölvukunnátta
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
- Jákvæðni og góð samskiptafærni
- Hreint sakavottorð













