

Teymisstjóri leikmyndaframleiðslu Þjóðleikhússins
Þjóðleikhúsið er lifandi og kraftmikið leikhús sem á brýnt erindi við fólkið í landinu og setur upp leiksýningar sem hrífa áhorfendur og skemmta, vekja til umhugsunar, endurspegla fjölbreytileika mannlífsins og veita innblástur. Þjóðleikhúsið er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður þar sem starfsfólk leggur metnað sinn í að skapa jarðveg fyrir nýsköpun og framþróun í sviðslistum og bjóða upp á framúrskarandi leiksýningar.
Þjóðleikhúsið leitar að reynslumiklum, lausnamiðuðum, metnaðarfullum og drífandi leiðtoga með brennandi áhuga á starfsemi leikhúsa sem hefur metnað til að láta til sín taka, bæta starfsumhverfi sitt og axla ábyrgð. Starfið felur í sér framleiðslustjórn fyrir framleiðslu leikmynda á öllum sviðum leikhússins. Teymisstjóri tekur við teikningum og hugmyndum frá leikmyndahöfundum og leiðir hóp starfsfólks á smíðaverkstæði við úrvinnslu og útfærslu á þeim teikningum/hugmyndum. Teymisstjóri starfar með stjórnendum leikhússins að því að tryggja hámarks gæði og hagkvæmni í framleiðslu leikverka leikhússins ásamt því að framfylgja umhverfisstefnu leikhússins.
Þjóðleikhúsið er jafnlaunavottaður vinnustaður þar sem fjölbreyttur og samheldinn hópur starfar. Stofnunin er þátttakandi í verkefninu um styttingu vinnuvikunnar og boðið er upp á hlunnindi svo sem samgöngustyrk vegna vistvænna samgangna.
-
Taka við hugmyndum og teikningum frá leikmyndahöfundum og vera í samtali við þau um efnisval, tæknilegar útfærslur og vinnsluaðferðir
-
Stýra starfi framleiðsluteymis og stjórna ferli og samhæfingu við önnur teymi og deildir vegna framleiðslu leikverka á öllum leiksviðum leikhússins
-
Vinna að útfærslu við framleiðslu og smíði leikmynda
-
Vinna náið með tæknistjóra á sviði
-
Útbúa smíða- og tækniteikningar eða staðfesta slíkar frá hönnuðum m.t.t tækja- og tæknibúnaðar hússins, annarra leikmynda á tilteknu sviði, skiptinga og geymslupláss og öryggiskrafna o.s.frv.
-
Gæta þess að rekstur framleiðsluteymis sé ávallt í samræmi við samþykktar forsendur og áætlanir
-
Sjá til þess að framleiðsluferli og tímaáætlanir í framleiðslu leikmynda haldist.
-
Stuðla að því að efni og aðföng séu vel nýtt
-
Leggja sig fram við að kolefnisfótspor við framleiðslu leikmynda sé haldið í lágmarki og sé í samræmi við umhverfisstefnu leikhússins
-
Sjá um að skipuleggja vinnutíma starfsfólks við framleiðslu leikmynda og nýta hann á sem hagkvæmastan hátt
-
Tryggja að öryggi, frágangur og umgengni framleiðsluteymis og vinnusvæði þess sé til fyrirmyndar
-
Þekking og reynsla af starfi í leikhúsi eða kvikmyndum og framleiðslu leikmynda
-
Mikil reynsla af hverskyns smíðavinnu og þekking á öryggiskröfum
-
Reynsla af stjórnun með mannaforráð
-
Menntun sem nýtist í starfi
-
Mjög góð skipulagshæfni
-
Hæfni til að leysa tæknilega flókin verkefni, úthluta verkefnum og halda yfirsýn
-
Góð almenn tölvukunnátta: Outlook, Excel, Word.
-
Yfirgripsmikil þekking og kunnátta á algengum teikniforritum eins og Sketchup og Auto CAD
-
Hæfni til samvinnu í fjölbreyttu teymi þvert á deildir þar sem sveigjanleiki og aðlögunarhæfni er mikilvægur eiginleiki
-
Hugmyndaauðgi, frumkvæði og áræðni ásamt mikilli hæfni í mannlegum samskiptum
-
Gott vald á íslensku og/eða ensku













