Skrifstofa starfsstöðva og þróunar
Skrifstofa starfsstöðva og þróunar
Skrifstofa starfsstöðva og þróunar

Teymisstjóri í íbúðakjarna fyrir fólk með fatlanir

Velferðarsvið Kópavogsbæjar auglýsir eftir teymisstjóra í íbúðakjarna fyrir fatlað fólk.

Starfið felst í persónulegum stuðningi og þátttöku í faglegu starfi í samvinnu við forstöðumann, deildarstjóra og aðra teymisstjóra.

Um er að ræða sex íbúða kjarna þar sem áhersla er lögð á einstaklingsmiðaða þjónustu og valdeflandi samskipti í samræmi við hugmyndafræði um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsögn.

Um er að ræða fullt starf í vaktavinnu, tímabundið til eins árs með möguleika á áframhaldandi starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veitir stuðning við íbúa í þeirra daglega lífi, innan sem utan heimilis.
  • Samvinna við starfsfólk, aðstandendur og aðra þjónustuaðila íbúa.
  • Hefur yfirsýn yfir þjónustuþarfir íbúa í sínu teymi og tryggir að starfsemin mæti þeim.
  • Gerð einstaklingsáætlana og verkferla.
  • Sinnir vaktstjórn og utanumhaldi daglegrar þjónustu við íbúa.
  • Tekur þátt í fræðslu og þjálfun starfsfólks samkvæmt faglegum áherslum velferðarsviðs. Veitir starfsfólki leiðsögn og ráðgjöf um framkvæmd þjónustu við íbúa.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun BA/BS í mennta-, heilbrigðis- eða félags-og mannvísindum.
  • Að lágmarki 3-5 ára reynsla af störfum með fólki með fötlun.
  • Þekking á meginhugmyndum er birtast í lögum um málefni fatlaðs fólks.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum, ábyrgðarkennd og frumkvæði.
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í starfi.
  • Gott líkamlegt ástand.
  • Ökuréttindi æskileg.
Fríðindi í starfi
  • Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frítt í sund í sundlaugar bæjarins.
Advertisement published18. November 2025
Application deadline15. December 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Vallakór 4, 203 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.Public administrationPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Team work
Professions
Job Tags