Skrifstofa starfsstöðva og þróunar
Skrifstofa starfsstöðva og þróunar
Skrifstofa starfsstöðva og þróunar

Teymisstjóri óskast í nýjan íbúðakjarna

Velferðarsvið Kópavogsbæjar opnaði nýjan íbúðarkjarna fyrir fatlað fólk í júní 2025.

Starfið felst í persónulegum stuðningi og þátttöku í faglegu starfi í samvinnu við forstöðuþroskaþjálfa, deildarstjóra og aðra teymisstjóra.

Um er að ræða sjö íbúða kjarna og er áhersla lögð á einstaklingsmiðaða þjónustu og valdeflandi samskipti. Unnið er eftir hugmyndafræðunum um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsögn.

Um er að ræða fullt starf í vaktavinnu.

Um framtíðarstarf er að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þátttaka í gerð einstaklingsáætlana.
  • Veitir stuðning við íbúa í þeirra daglega lífi, jafnt innan sem utan heimilis.
  • Samvinna við starfsfólk, aðstandendur og aðra þjónustuaðila íbúa.
  • Tekur þátt í fræðslu og þjálfun starfsfólks samkvæmt faglegum áherslum velferðarsviðs. Veitir starfsfólki leiðsögn og ráðgjöf um framkvæmd þjónustu við íbúa.
  • Hefur yfirsýn yfir þjónustuþarfir íbúa í sínu teymi og tryggir að starfsemin mæti þeim. 
  • Sinnir vaktstjórn og utanumhaldi daglegrar þjónustu við íbúa.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á sviði þroskaþjálfa, mennta- eða félagsvísinda.
  • Reynsla og þekking á starfi með fötluðu fólki nauðsynleg.
  • Þekking á meginhugmyndum er birtast í lögum um málefni fatlaðs fólks.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum, ábyrgðarkennd og frumkvæði.
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í starfi.
Fríðindi í starfi

Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frítt í sund í sundlaugum bæjarins.

 

Advertisement published10. November 2025
Application deadline30. November 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Kleifakór 1, 203 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Care (children/elderly/disabled)
Professions
Job Tags