
Festi
Festi á og rekur fyrirtæki sem eru leiðandi hvert á sínum markaði; matvöru-, raftækja-, lyfja- og heilsuvöru-, eldsneytis-, raforkusölu- og þjónustustöðvamarkaði. Fasteigna- og vöruhúsarekstur og kaup og sala verðbréfa er einnig hluti af starfsemi samstæðunnar.
Móðurfélagið Festi á dótturfélögin Krónuna sem rekur samnefndar matvöruverslanir, N1 sem rekur þjónustustöðvar eldsneytis- og rafmagnssölu og ýmsa þjónustu tengda smur- og bifreiðaþjónustu, ELKO sem er stærsta raftækjaverslun landsins, Lyfju sem starfrækir 45 apótek og útibú, Yrkir sem á og rekur fasteignir samstæðunnar og Bakkann vöruhótel sem sérhæfir sig í vöruhúsaþjónustu og dreifingu.

Tæknimaður – kassakerfi og þjónusta
Viltu vinna hjá framsæknu fyrirtæki sem leggur áherslu á tækninýjungar og þjónustar fjölda viðskiptavina á hverjum degi?
Upplýsingatæknideild Festi leitar að lausnamiðuðum og þjónustuliprum tæknimanni, í teymi sérfræðinga, til að sinna uppsetningu og þjónustu við kassakerfi og jaðartæki í verslunum og á þjónustustöðvum hjá rekstrarfélögum Festi hf. – þar á meðal eru Krónan, N1, Lyfja og ELKO.
Helstu verkefni
- Uppsetning, þjónusta og bilanagreining á afgreiðslukössum og tengdum jaðartækjum
- Innleiðing og stuðningur við LS Central for retail kassakerfi.
- Vinna á vettvangi verslana og þjónustustöðva eftir þörfum.
- Þátttaka í umbótaverkefnum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Þekking og reynsla af uppsetningu og viðhaldi kassakerfa og tengdra tækja.
- Kunnátta og skilningur á LS Central for retail kassakerfi er skilyrði.
- Reynsla af sambærilegu þjónustu- eða tæknistarfi.
- Geta til að vinna sjálfstætt og bregðast hratt við vandamálum.
- Jákvæðni, þjónustulund og góð samskiptafærni.
Nánari upplýsingar veitir Linda Kristmannsdóttir, Forstöðumaður upplýsingatækni – [email protected].
Umsóknarfrestur er til og með 13. júlí 2025.
Advertisement published25. June 2025
Application deadline13. July 2025
Language skills

Required
Location
Dalvegur 10-14, 201 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Lagerstarf - Varahlutir - Bifreiðar
Vélrás

Tæknisvið Securitas á Austurlandi
Securitas

Vélaverkfræðingur / Véltæknifræðingur á Varma og orkusviði
Frost

Tæknimaður
BAKO VERSLUNARTÆKNI ehf

Tæknimaður – Fastus expert Akureyri
Fastus

Sérfræðingur í vöruhúsi gagna og gagnavinnslu
Norðurál

Tæknimaður / Kerfisstjóri
Prod

Við leitum að UT sérfræðingi
Myllan

Rafvirki / Rafeindavirki til starfa í Tæknideild
Nortek

Sérfræðingur í brunahönnun
Lota

Verkstæðismaður
Teitur

Uppsetning og viðhald á sjálfvirkum búnaði.
Járn og Gler hf