Norðurál
Norðurál
Norðurál

Sérfræðingur í vöruhúsi gagna og gagnavinnslu

Norðurál leitar að hæfum og metnaðarfullum einstaklingi til að ganga til liðs við upplýsingatæknideild fyrirtækisins í starf sérfræðings í vöruhúsi gagna og gagnavinnslu. Eitt af megin hlutverkum viðkomandi er ábyrgð á uppbyggingu, viðhaldi og þróun vöruhúsa gagna, ásamt því að vinna úr gögnum til að styðja við ákvarðanatöku fyrirtækisins. Verkefnin eru áhugaverð og fjölbreytt í lifandi starfsumhverfi þar sem metnaður og fagmennska eru í fyrirrúmi.

Starfið heyrir undir fjármálasvið fyrirtækisins.

Helstu verkefni og ábyrgð

·       Uppbygging og viðhald á vöruhúsum gagna

·       Gagnavinnsla og greining gagna

·       Hönnun og þróun gagnalíkana og gagnagrunnskerfa

·       Samvinna við aðrar deildir til að tryggja rétta og skilvirka notkun gagna

·       Notendaþjónusta og lausn tæknilegra vandamála

Menntunar- og hæfniskröfur

·       Háskólamenntun í tölvunarfræði, upplýsingatækni eða sambærilegt nám

·       Reynsla af vöruhúsum gagna og gagnavinnslu

·       Þekking á gagnalíkönum og gagnagrunnskerfum

·       Þekking á Tableau er kostur

·       Þekking á SAP er kostur

·       Sterk öryggisvitund, frumkvæði og fagleg vinnubrögð

·       Góðir samskiptahæfileikar og hæfni til að vinna í teymi

·       Þjónustulund og geta til að vinna sjálfstætt

Advertisement published19. June 2025
Application deadline3. July 2025
Language skills
No specific language requirements
Location
Grundartangahöfn lóð 12, 301 Akranes
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Driver's license (B)PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Data analysisPathCreated with Sketch.Database designPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.SAPPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags