MyTimePlan
MyTimePlan

Hugbúnaðarsérfræðingur

MyTimePlan leitar að öflugum og hæfileikaríkum hugbúnaðarsérfræðingi.

Þú verður hluti af hæfileikaríku hugbúnaðarteymi og færð tækifæri til að vinna fyrir mörg af stærstu fyrirtækjum landsins.

Til að ná árangri í starfinu þarftu að mastera virkni MyTimePlan kerfisins, hafa framúrskarandi rökhugsun, góða samskiptahæfileika, vera skipulagður og drífandi í að koma hlutum í framkvæmd og tryggja ánægju viðskiptavina.

Helstu verkefni og ábyrgð

Sem hugbúnaðarsérfræðingur ertu í lykilhlutverki við að laga MyTimePlan að ólíkum þörfum og kröfum viðskiptavina og hámarka hagnað þeirra af notkun kerfisins.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á sviði tölvunarfræði, verkfræði eða öðru er nýtist í starfi, skilyrði

  • Reynsla af innleiðingu á umfangsmiklum, flóknum og sveigjanlegum hugbúnaði, kostur

  • Reynsla og þekking á vakta- & viðverukerfum, kostur

  • Reynsla og þekking á launakerfum og launavinnslu, kostur

  • Starfið felur ekki í sér eiginlega forritun

Advertisement published18. June 2025
Application deadline30. June 2025
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags