

Verkefnastjóri Öryggisþjónustu
Öryggismiðstöðin óskar eftir verkefnastjóra.
Starfið felur í sér daglega stjórnun og samskipti við starfsmenn í öryggisgæslu.
Starfið er á sviði Mannaðra lausna sem veitir fjölbreytta þjónustu öryggisvarða, meðal annars útkallsþjónustu, vaktferðir, verðmætaflutninga og almenna öryggisgæslu fyrir viðskiptavini Öryggismiðstöðvarinnar. Við leitum að einstaklingum til starfa sem hafa ástríðu fyrir öryggi og velferð annarra, eru jákvæðir og geta tekið ákvarðanir skjótt og vel.
Um er að ræða starf á samhentum, traustum og metnaðarfullum vinnustað.
Umsóknarfrestur er til 20. júní. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf fljótlega og sé tilbúin/nn/ð í fullt starf.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Samvinna með deildarstjóra
- Verkefnastjórnun á verkefnum og eftirlit á verkstöðum
- Umsjón með gangsetningu verkefna og eftirfylgni þeirra
- Utanumhald verkefnastöðu og þjálfunarlista starfsmanna
- Útbúa leiðbeiningar fyrir starfsmenn og halda efninu uppfærðu
- Aðstoð við starfsemi öryggisþjónustu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í verkefnastjórnun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
- Þekking og reynsla af verkefnastjórnun og utanumhaldi vakta er æskileg
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Framsækni
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Rík þjónustulund
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
- Bílpróf
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Vakin er athygli á því að starfsmenn Öryggismiðstöðvarinnar þurfa að skila inn sakavottorði og lágmarksaldur er 20 ára. Nánari upplýsingar um starfið er í gegnum netfangið [email protected].
Öryggismiðstöðin er framsækið þjónustufyrirtæki sem býður upp á fjölbreyttar lausnir og þjónustu í öryggis- og velferðartækni, fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Hjá Öryggismiðstöðinni starfar öflugur hópur sérfræðinga sem býr yfir brennandi áhuga, faglegri þekkingu og mikilli reynslu af þjónustu við viðskiptavini. Við leggjum ríka áherslu og metnað í gæði ráðgjafar við val á lausnum. Hornsteinar þjónustu okkar er öflug tækniþjónusta ásamt rekstri vaktmiðstöðvar til móttöku viðvörunarboða og útkallsþjónusta öryggisvarða allan sólarhringinn, alla daga ársins.
Við leggjum áherslu á vandaða og persónulega þjónustu með gildi fyrirtækisins að leiðarljósi, forystu, umhyggju og traust.
Frekari upplýsingar um starfsemi Öryggismiðstöðvarinnar má finna á heimasíðunni www.oryggi.is













