Íslensk erfðagreining
Íslensk erfðagreining
Íslensk erfðagreining

Umsjónarmaður rannsóknagagna

Við leitum að skipulögðum einstaklingi til að styðja við eftirlit og utanumhald með rannsóknagögnum innan fyrirtækisins. Starfið felur í sér samhæfingu gagnaflutninga, umsýslu með rannsóknaleyfi og umsjón með skuldbindingum varðandi notkun gagna. Viðkomandi mun jafnframt taka virkan þátt í að móta og þróa verklag og ferla sem styðja við skilvirka og örugga meðhöndlun gagna.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Eftirlit með gagnaflutningum: 
    Fylgjast með og samhæfa flutning gagna inn og út úr fyrirtækinu, með það að markmiði að tryggja að samningar, lög, reglugerðir og aðrar skuldbindingar séu virtar. 
  • Umsýsla rannsóknaleyfa: 
    Halda utan um rannsóknaleyfi, tryggja að öll skjöl séu til staðar, uppfærð og aðgengileg þegar þörf krefur. 
  • Eftirfylgni og forgangsröðun: 
    Eftirfylgni með gagnaflutningum sem tengjast rannsóknaleyfum. Tryggja að verkefni séu unnin tímanlega og í samræmi við forgangsröðun. 
  • Þróun ferla og verklags: 
    Taka þátt í að skilgreina og bæta innri ferla og verkferla tengda rannsóknagögnum. 
  • Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólanám á sviði tölvunarfræðinnar eða sambærilegum greinum
  • Góð skipulagsfærni og áhugi á verkefnastjórnun. 
  • Tæknilegur bakgrunnur sem gerir viðkomandi kleift að skilja gagnavinnslu, hugbúnaðarlausnir og tengda innviði. 
  • Mjög góð samskiptafærni bæði á íslensku og ensku, munnlega og skriflega. 
  • Hæfni til að vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra. 
  • Frumkvæði og áhugi á að móta og bæta vinnulag og ferla. 
Fríðindi í starfi
  • mötuneyti á staðnum
  • næg bílastæði
  • íþróttastyrkur
Advertisement published12. June 2025
Application deadline22. June 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Sturlugata 8, 101 Reykjavík
Type of work
Suitable for
Work environment
Professions
Job Tags