
Sumarstarf - Vöruhús Þykkvabæjar
Þykkvabæjar ehf. leitar af öflugum einstakling til að sinna lagerstarfi í vöruhúsi fyrirtækisins í Austurhrauni. Mikil áhersla er lögð á góða skipulagshæfni, góð mannleg samskipti, íslensku- eða enskukunnáttu og samviskusemi.
Vinnutími er frá 7:00 – 15:00 alla virka daga. Um sumarstarf er að ræða. Kostur ef starfsmaður getur hafið störf fyrr.
Týnsla á vörum og samantekt á pöntunum
Dreifing á vörum
Samskipti við bílstjóra
Önnur tilfallandi verkefni
Gild ökuréttindi á beinskipta bíla
Góð íslensku- eða enskukunnátta er skilyrði
Reynsla af lagerstarfi er kostur
Lyftarapróf er mikill kostur
Gerð er krafa um sterka öryggisvitund, góða ástundun og samviskusemi
Heiðarleiki og hæfni í mannlegum samskiptum
Gott heilsufar
Hreint sakavottorð er skilyrði fyrir ráðningu
Kostur ef viðkomandi er reyklaus













