Sumarstarf - Sjúkraliðar/sjúkraliðanemar
Heilsuvernd Vífilsstöðum er skipuð sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem leggur áherslu á faglega og framúrskarandi þjónustu. Á Vífilsstöðum er sem stendur veitt þjónusta til aldraðra sem bíða eftir varanlegri búsetu á hjúkrunarheimili en þjónustan verður þróuð áfram á komandi mánuðum og verður þá lögð áhersla á líknar- og bráðaþjónustu við aldraða.
Við leitum nú að sjúkraliðum eða einstaklingum sem eru í námi á sjúkraliðabraut til starfa i sumar. Starfshlutfall og vaktir eftir nánara samkomulagi. Við leitum eftir einstaklingum sem hafa jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi og eru tilbúnir að takast á við fjölbreytt verkefni í sterku teymi fagfólks á góðum vinnustað.
Hjá Heilsuvernd leggjum við okkur fram um að skapa glaðlegt og gott vinnuumhverfi, auk þess sem við leggjum mikinn metnað í að veita framúrskarandi þjónustu.
- Að veita skjólstæðingum Vífilsstaða líkamlega, andlega og félagslega aðhlynningu
- Verkefni tengd almennri umönnun
- Sjúkraliðamenntun eða í námi á sjúkraliðabraut
- Reynsla af störfum með öldruðum er æskileg
- Frumkvæði, jákvæðni og samstarfsvilji
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góð samskiptahæfni
- Þolinmæði og sveigjanleiki
- Góð íslenskukunnátta er æskileg