Vertu hluti af framtíð velferðarþjónustu
Skjáver Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar leitar að metnaðarfullum liðsfélaga!
Viltu taka þátt í að veita mikilvæga þjónustu með nýjustu lausnum í rafrænni velferðarþjónustu? Við leitum að áhugasömum einstaklingi í 60% hlutastarf í vaktavinnu hjá Skjáveri Velferðarsviðs, sem tilheyrir Rafrænni miðstöð Reykjavíkurborgar.
Sem hluti af okkar teymi munt þú:
✅ Veita skjáheimsóknir til notenda heimastuðnings og veita félagslegan stuðning.
✅ Hafa eftirlit með sjálfvirkum lyfjaskömmturum og tryggja öryggi notenda.
✅ Setja upp og þjónusta sjálfvirka lyfjaskammtara á heimili notenda.
✅ Veita tæknilega aðstoð í heimahúsum.
Þetta er kjörið tækifæri til að kynnast fjölbreyttri starfsemi innan velferðarsviðs og taka þátt í þróun rafrænnar þjónustu sem gerir fólki kleift að búa lengur og öruggara heima.
🔹 Ert 20 ára eða eldri, hefur reynslu af þjónustustarfi og ert með bílpróf.
🔹Býrð yfir framúrskarandi samskiptahæfni, jákvæðni og þjónustulund.
🔹Ert sjálfstæð/ur, skipulögð(ur) og lausnamiðuð(ur) í starfi.
🔹 Ert sveigjanleg/ur og góður liðsfélagi.
🔹 Hefur góða almenna tæknikunnáttu og áhuga á velferðarþjónustu.
🔹 Talar góða íslensku (B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum).
Hreint sakavottorð er skilyrði í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.