
Sólvangur hjúkrunarheimili
Sóltún hóf störf í janúar 2002 og var fyrsta hjúkrunarheimilið á landinu sem fór í einkaframkvæmd. Við bjóðum upp á hjúkrun, heilsueflingu og stuðning en í dag eru rekin tvö hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu, Sóltún í Reykjavík og Sólvangur í Hafnarfirði sem opnaði árið 2019. Auk heimilanna tveggja er boðið upp á heimaþjónustu, endurhæfingu, dagdvöl og dagþjálfun.
Heimilisandi og virðing fyrir einkalífi hvers skjólstæðings er ráðandi í okkar starfi en einnig öryggiskennd íbúanna sem hlýst með sambýli við aðra og sólarhrings hjúkrunarþjónustu.
Athafnir daglegs lífs eru viðfangsefni á hvoru heimili fyrir sig. Áhersla er lögð á þátttöku íbúa og aðstandenda þeirra eftir getu, óskum og vilja hvers og eins.

Sumarstarf í umönnun – Sólvangur
Viltu vera sólarmegin í sumar ?
Gefandi starf og dýrmæt reynsla!
Við leitum að duglegu, jákvæðu og stundvísu fólki til starfa við umönnun á Sólvangi hjúkrunarheimili. Umsækjendur þurfa að hafa góða samskiptahæfni og hafa gaman af því að umgangast eldra fólk. Skilyrði er að viðkomandi hafi góða íslenskukunnáttu, sé orðinn 18 ára og með hreint sakavottorð.
Um er að ræða sumarstarf með möguleika á framlengingu, mikilli vinnu og góðum tekjum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Veita aðstoð við daglega umönnun íbúa
- Teymisvinna sem stuðlar að öruggu og hlýlegu umhverfi fyrir íbúa
- Ýmis tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Áhugi á að vinna með fólki
- Góð samskiptahæfni
- Stundvísi
- Jákvæðni og metnaður í starf
Advertisement published3. March 2025
Application deadlineNo deadline
Language skills

Required
Location
Sólvangsvegur 2, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (2)
Similar jobs (12)

Starfsmaður á Heimili fyrir börn
Mosfellsbær

Aðstoðarkona óskast til starfa
Heiða slf

Umönnun - Sóltún
Sóltún hjúkrunarheimili

Umönnun - Sólvangur
Sólvangur hjúkrunarheimili

Næringarráðgjafi
Elite Wellness

Sumarafleysingar á heimili fatlaðs fólks
Sveitarfélagið Ölfus

Atvinna Lífsgæðasetur aldraðra í Þorlákshöfn
Sveitarfélagið Ölfus

Starfsmaður óskast til starfa í Geitunga - úrræði fyrir fatlað fólk
Hafnarfjarðarbær

Spennandi sumarstarf í nýjum íbúðarkjarna
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Stuðningsráðgjafi í vinnu og virkni
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sumarstarf í dagdvöl - Hrafnista Ísafold
Hrafnista

Gott starf í Keflavík fyrir 25 ára og eldri, íslenskumælandi
NPA miðstöðin