
Skólamatur
Skólamatur ehf. er fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu og framreiðslu á hollum og ferskum mat, elduðum frá grunni fyrir leik- og grunnskóla.
Skólamatur ehf. var stofnað í janúar 2007. Fyrirtækið er í eigu Axels Jónssonar matreiðslumeistara sem hefur áratuga reynslu af alhliða veitingarekstri.
Hjá Skólamat starfa um 200 starfsmenn. Starfsmannavelta fyrirtækisins er lág og starfsaldur hár. Rúmlega helmingur núverandi starfsmanna hefur unnið í 5 ár eða lengur hjá fyrirtækinu.
Skólamatur leggur áherslu á að skapa fjölskylduvænt vinnuumhverfi þar sem hæfileikar, þekking og reynsla hvers starfsmanns fær að njóta sín. Við leggjum áherslu á símenntun og fræðslu og að starfsmenn fái tækifæri til þess að eflast og þróast í starfi.
Markmið Skólamatar er að ráða, efla og halda hæfu og reynslumiklu starfsfólki.
Gildi Skólamatar eru: Jákvæðni, fjölskylda og virðing.

Stapaskóli - mötuneyti
Komdu að vinna fyrir mikilvægasta fólkið!
Skólamatur leitar að jákvæðu og duglegu starfsfólki í mötuneyti sitt í Stapaskóla í Reykjanesbæ.
Um er að ræða 50% starf með vinnutímann frá kl.9:30 til 13:30 alla virka skóladaga.
Starfið felst í undirbúningi og lokaeldun hádegismáltíða, undirbúningi og afgreiðslu máltíða og frágangi ásamt léttum þrifum i eldhúsi. Starfsmenn mötuneyta panta inn af pöntunarvef Skólamatar og senda inn dagsskýrslur.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Áhugi á mat og matargerð er mikill kostur
- Reynsla úr sambærilegu starfi æskileg.
- Menntun sem nýtist í starfi kostur.
- Góð íslenskukunnátta skilyrði.
- Jákvæðni, snyrtimennska, stundvísi og sjálfstæð vinnubrögð.
- Geta til þess að vinna undir álagi.
Fríðindi í starfi
- Vinnufatnaður.
- Íþróttastyrkur.
- Samgöngustyrkur.
- Fjölskylduvænn vinnustaður.
Advertisement published12. November 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Dalsbraut 1, 260 Reykjanesbær
Type of work
Skills
PositivityConscientiousIndependencePlanningPunctualFlexibility
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Icewear Goðafossi - Sölufulltrúar
ICEWEAR

Vaktstjóri í eldhúsi | Kitchen - Shift Manager
Íslandshótel

Þjónustufulltrúi hjá Ison
Ison heildverslun

Vaktstjóri í verslun
Heinemann Travel Retail Iceland ehf.

Starfsmaður í verslun - Byko Grandi
Byko

Pizzan óskar eftir starfsfólki
Pizzan

Vaktstjóri - Maika'i Kringlan
MAIKA'I

Þjónustustjóri(Service Manager) Óskast til starfa hjá iClean
iClean ehf.

Kirkjubæjarklaustur - verslunarstjóri
Vínbúðin

Matreiðslumaður / Matreiðslunemi / Sushi-kokkur – Fiskmarkaðurinn
Fiskmarkaðurinn

Vertu með okkur í að byggja lager framtíðarinnar
Hekla

Aðstoð í eldhúsi
AÞ-Þrif ehf.