Heinemann Travel Retail Iceland ehf.
Heinemann Travel Retail Iceland ehf.
Heinemann Travel Retail Iceland ehf.

Vaktstjóri í verslun

Ísland Duty Free leitar að jákvæðum og þjónustuliprum einstaklingi í öflugt teymi okkar. Við leitum að aðila sem brennur fyrir framúrskarandi þjónustu, hefur sterka söluhæfni og vill skapa eftirminnilega upplifun fyrir ferðamenn.

Um vaktavinnu er að ræða þar sem unnið er á 11 klst. vöktum skv. 2-2-3 vaktafyrirkomulagi.

Við erum hluti af Gebr. Heinemann, fjölskyldufyrirtæki sem starfar á alþjóðlegum markaði. Hjá okkur leggjum við áherslu á góða þjónustu, fjölbreytt vöruúrval og jákvæða upplifun viðskiptavina.

Tilgangur starfsins

  • Leitast við að gera ferðamenn að ánægðum og tryggum viðskiptavinum
  • Hámarka sölu með framúrskarandi þjónustu
  • Vera jákvæður og faglegur fulltrúi Ísland Duty Free
  • Stuðla að árangri í sölu, þjónustu, ánægju viðskiptavina og teymisvinnu
Helstu verkefni og ábyrgð

Viðskiptavinir og sala

  • Taka á móti viðskiptavinum á persónulegan og virkan hátt
  • Veita framúrskarandi þjónustu með góðri samskiptahæfni og vöruþekkingu
  • Greina þarfir viðskiptavina og hvetja til frekari kaupa
  • Nýta stafrænar lausnir til að styðja við sölustarf
  • Fylgja verklagsreglum og staðbundnum kröfum verslunar

Teymisvinna

  • Vera virkur og leiðandi í teymisstarfi, styðja og hvetja samstarfsfólk
  • Halda uppi opnum og faglegum samskiptum milli söluteymis og stjórnenda
  • Deila þekkingu og leggja sitt af mörkum til sameiginlegs árangurs

Gólfstjórn

  • Vaktstjóri tryggir hnökralaust flæði í verslun, styður starfsfólk og leysir úr málum sem upp koma í samráði við verslunarstjóra
  • Fylgjast með þjónustustigi og sjá um skipulag og verkaskiptingu á vaktinni
  • Tryggja að upplýsingagjöf, birgðir og framsetning séu í lagi
Menntunar- og hæfniskröfur

Menntun og reynsla

  • Menntun sem nýtist í starfi - verslunarfagnám, nám í sölu og þjónustu eða sambærileg menntun og/eða starfsreynsla.
  • Þekking á vöruframboði er kostur
  • Góð enskukunnátta; kunnátta í fleiri tungumálum er mikill kostur

Persónulegir eiginleikar

  • Opin, jákvæð og þjónustulipur framkoma
  • Sterk þjónustulund
  • Frábær samskipta- og söluhæfni, góð virk hlustun
  • Sjálfstæði og frumkvæði í ákvarðanatöku innan eigin ábyrgðarsviðs
  • Markmiðadrifinn liðsfélagi sem nýtur þess að vinna með öðrum
Fríðindi í starfi
  • Líkamsræktarstyrkur
  • Fríar rútuferðir eða ökutækjastyrkur
  • Niðurgreitt mötuneyti
Advertisement published12. November 2026
Application deadline28. November 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Expert
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.HonestyPathCreated with Sketch.Clean criminal record
Professions
Job Tags