
Ison heildverslun
Ison heildverslun sérhæfir sig í innflutningi og sölu á gæða vörum og faglegum verkfærum til fyrirtækja og verslana um allt land. Við þjónustum bæði sérhæfðar verslanir og stærri matvöruverslanir og leggjum áherslu á áreiðanleika, gott vöruúrval og traust viðskiptasambönd.

Þjónustufulltrúi hjá Ison
Við leitum að öflugum og þjónustulunduðum einstaklingi til að bætast í hópinn okkar hjá Ison.
Starfið er fjölbreytt þjónustustarf þar sem þú ert í daglegum samskiptum við viðskiptavini okkar, tekur á móti pöntunum og fyrirspurnum og sinnir sýningarrými Ison.
Helstu verkefni
- Þjónusta við viðskiptavini í sýningarrými
- Símsvörun og tölvupóstsamskipti
- Móttaka og skráning pantana
- Samskipti og samvinna við lager
- Ráðgjöf og upplýsingagjöf um vörur
- Almenn þjónusta og tilfallandi verkefni
Við leitum að einstaklingi sem
- hefur ríka þjónustulund og góða samskiptahæfni
- hefur góða íslenskukunnáttu í bæði ræðu og riti.
- er tölvulæs og öruggur í almennri tölvuvinnu
- er skipulagður, nákvæmur og sjálfstæður
- á auðvelt með að halda utan um mörg verkefni í einu
- á auðvelt með að vinna með öðrum og leggja sitt af mörkum til góðs samstarfs
Það er mikill kostur ef viðkomandi hefur menntun í hársnyrtiiðn eða reynslu af störfum innan hárgreiðslugeirans. Þekking á vörumerkjum og vörum Ison er einnig kostur.
Starfshlutfall og vinnutími
Um er að ræða 90% starf með föstum vinnutíma frá kl. 9:00–16:00 alla virka daga. Starfið er staðbundið í húsnæði Ison að Skútuvogi 11A og krefst daglegrar viðveru á auglýstum vinnutíma.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þjónusta og ráðgjöf til viðskiptavina í sýningarrými Ison
- Símsvörun og tölvupóstsamskipti við viðskiptavini
- Móttaka, skráning og eftirfylgni pantana
- Umsjón með daglegum rekstri og útliti sýningarrýmis
- Samskipti og samvinna við lager vegna pantana og afhendinga
- Upplýsingagjöf og ráðgjöf um vörur og vörumerki Ison
- Úrlausn fyrirspurna og þjónustumála
- Almenn skrifstofustörf og önnur tilfallandi verkefni
Advertisement published12. November 2026
Application deadline16. November 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Skútuvogur 11A, 104 Reykjavík
Type of work
Skills
General computer knowledgeReliabilityAdaptabilityPositivityHuman relationsDriver's licencePhone communicationEmail communicationPlanningNeatnessPunctualTeam workCustomer service
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Vaktstjóri í verslun
Heinemann Travel Retail Iceland ehf.

Starfsmaður í verslun - Byko Grandi
Byko

Pizzan óskar eftir starfsfólki
Pizzan

Viðskiptaráðgjafi – innleiðing og þjónusta
Elvo lausnir ehf.

Vaktstjóri - Maika'i Kringlan
MAIKA'I

Stapaskóli - mötuneyti
Skólamatur

Kirkjubæjarklaustur - verslunarstjóri
Vínbúðin

Helgar og aukavinna í Curvy & Stout❤️
Curvy verslun

Pizzabakari - Pizza baker
EIRIKSSON BRASSERIE

Lagerstarfsmaður óskast
Hreinlætislausnir Áfangar ehf.

Tímabundið starf í ELKO Lindum yfir jólin
ELKO

Starfsmaður á afgreiðslukassa BYKO Breidd - Fullt starf
Byko