

Vaktstjóri í eldhúsi | Kitchen - Shift Manager
Ertu að leita að skemmtilegu starfi í dýnamísku og alþjóðlegu umhverfi? Hótel Reykjavík Askja leitar að öflugum vaktstjóra í eldhúsi. Vertu hluti af fjölbreyttu og samheldnu teymi sem myndar öfluga liðsheild og veitir framúrskarandi þjónustu.
Við leitum að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á matargerð, býr yfir góðri leiðtogahæfni og hefur metnað til að taka þátt í að byggja upp öflugt og samheldið eldhústeymi.Ef þú hefur áhuga á að starfa í lifandi og krefjandi umhverfi þar sem engir tveir dagar eru eins, hvetjum við þig til að sækja um!
Starfssvið
- Fagleg stjórnun, skipulagning og daglegur rekstur eldhúss.
- Matreiðsla, bakstur og framsetning rétta og veitinga.
- Dagleg vaktstjórn og verkstýring í eldhúsi.
- Þjálfun, leiðsögn og eftirfylgni með starfsfólki.
- Umsjón með mönnun vakta og skipulagning afleysinga vegna fría og veikinda.
- Tryggja góða upplýsingamiðlun innan teymisins og á milli vakta.
- Taka á móti áskorunum og leysa mál sem upp kunna að koma á faglegan og uppbyggilegan hátt.
- Tryggja að gæði, framsetning og frágangur veitinga standist settar kröfur.
- Ábyrgð á réttri meðhöndlun, frágangi og geymslu matvæla.
- Eftirlit með hreinlæti og eftirfylgni með HACCP-verkferlum.
- Eftirlit með kostnaði, birgðum og nýtingu hráefna.
Hæfniskröfur
- Menntun í matreiðslu eða önnur viðeigandi menntun.
- Töluverð reynsla af sambærilegum störfum er skilyrði.
- Reynsla af stjórnun eða verkstýringu er kostur.
- Góð leiðtogahæfni og hæfni til að hvetja og leiðbeina starfsfólki.
- Jákvætt viðmót, góð samskiptahæfni og rík þjónustulund.
- Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Skipulögð, nákvæm og lausnamiðuð vinnubrögð.
- Öryggisvitund og þekking á HACCP-verkferlum.
Öflug liðsheild Íslandshótela starfar samkvæmt eftirfarandi gildumFagmennska – Hugrekki – Samvinna - Umhyggja
Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.
Hótel Reykjavík Askja er vel staðsett fjögurra stjörnu hótel í grænu og friðsælu umhverfi við Öskjuhlíð. Þaðan er stutt í Nauthólsvík, Perluna, Háskólann í Reykjavík og innanlandsflugvöllinn, en miðborg Reykjavíkur er jafnframt innan seilingar.
Á hótelinu eru 220 herbergi, fjölbreytt funda- og ráðstefnuaðstaða, veitingastaðurinn Lauf Bistro, bar, spa og heilsurækt. Hótelið hentar því jafnt einstaklingum, fjölskyldum, hópum og fyrirtækjum sem vilja góða aðstöðu í rólegu umhverfi nálægt miðborginni.
Lærðu meira um Hótel Reykjavík Öskju
----
Are you looking for an exciting opportunity in a dynamic and international environment? Hotel Reykjavík Askja is looking for a motivated and experienced Kitchen Shift Manager to join our team. Become part of a diverse and supportive team, working together to deliver an exceptional guest experience.
We are looking for an ambitious and positive individual with a passion for food, strong leadership skills and the drive to help build a strong and cohesive kitchen team.If you are excited about working in a dynamic and challenging environment where no two days are the same, we encourage you to apply!
Key Responsibilities
- Oversee, organise and manage the daily operations of the kitchen.
- Prepare, cook, bake and present dishes and food offerings.
- Lead daily kitchen shifts and coordinate tasks and workflows.
- Train, guide and support team members, ensuring appropriate follow-up.
- Manage staff scheduling and arrange cover for holidays and sick leave.
- Ensure effective communication within the team and between shifts.
- Address challenges and resolve any issues that arise in a professional and constructive manner.
- Ensure that the quality, presentation and preparation of all food meet established standards.
- Ensure proper handling, preparation, storage and preservation of food.
- Monitor cleanliness and ensure compliance with HACCP procedures.
- Monitor costs, stock levels and the efficient use of ingredients.
Qualifications and Skills
- A professional qualification in culinary arts or other relevant education.
- Considerable experience in a similar role is essential.
- Experience in management or team supervision is an advantage.
- Strong leadership skills and the ability to motivate and guide team members.
- Positive attitude, excellent communication skills and a strong customer service mindset.
- Initiative, ambition and the ability to work independently.
- Well-organised, accurate and solution-oriented approach to work.
- Strong awareness of food safety and knowledge of HACCP procedures.
The values of Íslandshótel are:Professionalism - Courage - Cooperation - Care
All inquiries and applications are handled confidentially.
Hotel Reykjavík Askja is a well-located four-star hotel in the green and peaceful surroundings of Öskjuhlíð. Nauthólsvík geothermal beach, Perlan, Reykjavík University and Reykjavík Domestic Airport are all nearby, while Reykjavík city centre is also within easy reach.
The hotel offers 220 rooms, extensive meeting and conference facilities, Lauf Bistro, a bar, spa and fitness facilities. It is therefore equally well suited to individual travellers, families, groups and businesses seeking comfortable accommodation and convenient facilities close to the city centre.
English
Icelandic










