

Vertu með okkur í að byggja lager framtíðarinnar
Við leitum að öflugum liðsfélaga til að bætast í skemmtilegan og samhentan hóp. Ef þú ert jákvæð/ur, dugleg/ur og hefur gaman af fjölbreyttu starfi gæti þetta verið rétta tækifærið fyrir þig.
Fram undan eru spennandi tímar. Í nýjum höfuðstöðvum okkar að Þorraholti í Garðabæ færð þú tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu á nýjum og tæknivæddum lager og móta starfsemina með okkur.
Við hvetjum öll kyn til að sækja um.
Móttaka, frágangur og meðhöndlun vara
Skráning og bókun vara með handtölvum og í vöruhúsakerfi
Þjónusta við viðskiptavini og samstarfsfólk
Tiltekt og almenn umhirða lagers
Dreifing vara og önnur fjölbreytt verkefni eftir þörfum
Jákvætt viðhorf og góð samskiptafærni
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Stundvísi og áreiðanleiki
Góðri almenn tölvukunnátta
Góðri íslenskukunnátta
Lyftarapróf er kostur, en ekki skilyrði
Icelandic
English










