

Hópstjóri gæðamála í vöruhúsi Innnes
English below*
Hópstjóri gæðamála
Ert þú drífandi leiðtogi sem gengur í verkin, leiðir með góðu fordæmi og hefur áhuga á gæðamálum og matvælaöryggi?
Innnes leitar að jákvæðum og öflugum hópstjóra gæðamála. Við leitum að einstaklingi sem tekur virkan þátt í daglegum verkefnum með teyminu, hefur gott skipulag og metnað til að ná árangri með fólkinu sínu.
Starfið felur í sér daglega stjórnun og skipulag gæðateymis ásamt gæðaeftirliti með matvælum við móttöku, geymslu og dreifingu
Helstu verkefni
- Dagleg stjórnun og skipulag gæðateymis
- Virk þátttaka í gæðaeftirliti með matvælum
- Verkefnadreifing og eftirfylgni innan teymisins
- Eftirfylgni með verklagi og góðum starfsháttum
- Þjálfun og leiðsögn starfsfólks í réttri meðhöndlun matvæla
- Náið samstarf við gæðastjóra og aðrar deildir
Við leitum að þér ef þú
- Ert drífandi og óhrædd/ur við að ganga í verkin
- Ert jákvæð/ur og leiðir með góðu fordæmi
- Hefur góða leiðtoga- og samskiptahæfni
- Ert skipulögð/lagður, ábyrg/ur og fylgir verkefnum vel eftir
- Hefur áhuga á gæðamálum og matvælaöryggi
- Hefur reynslu af teymisstjórnun, gæðamálum eða sambærilegu starfi, sem er kostur
Innnes
Innnes er eitt stærsta innflutningsfyrirtæki landsins í matvöru og víni og leggur áherslu á framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini sína með gildin gleði og fagmennsku að leiðarljósi.
Boðið er upp á fyrirmyndar vinnuumhverfi þar sem boðið er upp á mötuneyti með heitum mat og ýmis fríðindi eins og heilsuræktarstyrk, samgöngustyrk, öflugt félagslíf og fleira. Innnes starfrækir vottað jafnlaunakerfi í samræmi við jafnréttis- og launastefnu fyrirtækisins og við hvetjum áhugasama að sækja um, óháð kyni, uppruna o.s.frv.
Öllum umsóknum verður svarað og farið verður með þær sem trúnaðarmál.
Umsóknarfrestur er til og með 15.nóvember 2026
------------------------------------------------------------------------------------------------------
Quality Team Leader
Are you a hands-on and driven leader who leads by example and has a strong interest in quality and food safety?
Innnes is looking for a positive and motivated Quality Team Leader. We are looking for someone who enjoys being actively involved in the team’s day-to-day work, is well organised, and is motivated to achieve great results together with their team.
The role involves the daily leadership and organisation of the Quality Team, as well as active participation in food quality control during receiving, storage and distribution.
Key Responsibilities
- Daily leadership and organisation of the Quality Team
- Active participation in food quality control
- Delegating tasks and following up on the team’s work
- Ensuring procedures and good working practices are followed
- Training and guiding employees in proper food handling
- Working closely with the Quality Manager and other departments
We Are Looking for Someone Who
- Is driven and proactive
- Has a positive attitude and leads by example
- Has strong leadership and communication skills
- Is organised, responsible and follows through on tasks
- Has an interest in quality and food safety
- Has experience in team leadership, quality assurance or a similar role, which is considered an advantage
Innnes
Innnes is one of Iceland’s largest importers of food and wine, with a strong focus on excellent customer service and our core values are joy and professionalism.
We offer a great working environment, including a staff canteen serving hot meals and a range of employee benefits such as fitness and transportation allowances, an active social life, and more.
Innnes operates a certified Equal Pay Management System in line with the company’s equality and pay policies. We welcome applications from all qualified candidates, regardless of gender, background or other personal characteristics.
All applications will be acknowledged and treated confidentially.
Application deadline: 15 November 2026.
Icelandic
English










