Landspítali
Landspítali
Landspítali

Næringarfræðingur á næringarstofu

Næringarstofa Landspítala auglýsir starf næringarfræðings.

Við leitum að öflugum og metnaðarfullum næringarfræðingi til að sinna umsjón með fæðuþolsprófum og veita klíníska næringarmeðferð á göngu- og legudeildum Landspítala. Um er að ræða fjölbreytt og sérhæft starf þar sem reynir á fagþekkingu, skipulagshæfni og náið samstarf við aðrar heilbrigðisstéttir. Starfshlutfall er 50%, nema að um annað sé samið. Starfið er laust frá 1. desember 2026 eða samkvæmt samkomulagi.

Á næringarstofu starfar öflugur hópur næringarfræðinga í nánu samstarfi við aðrar fagstéttir á flestum deildum spítalans. Veitt er sérhæfð næringarmeðferð samkvæmt verkferli NCP fyrir sjúklinga á bráða, legu- og göngudeildum Landspítala. Markvisst er unnið að umbótum og framþróun. Öflugt rannsóknarstarf fer fram á næringarstofu í samstarfi við háskóla og stofnanir innanlands og erlendis auk þess sem boðið er upp á starfsþjálfun í klínískri næringarfræði.

Fæðuþolspróf eru mikilvægur þáttur í greiningu fæðuofnæmis og eru framkvæmd á göngudeild ofnæmis A3 og Barnaspítala Hringsins. Undirbúningur fæðuþolsprófanna fer fram í eldhúsi Landspítala í nánu samstarfi við næringarfræðinga eldhússins.

Við leitum að einstaklingi með faglegan metnað og áhuga á fjölbreyttum klínískum verkefnum í krefjandi þverfaglegu starfsumhverfi. Góð skipulags- og samskiptahæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum eru mikilvægir eiginleikar.

Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Education and requirements
Lokið klínísku námi í næringarfræði og íslenskt starfsleyfi sem næringarfræðingur
Reynsla af klínískri vinnu í næringarfræði á göngu- og legudeildum spítala er skilyrði
Reynsla af undirbúningi og gerð fæðuþolsprófa er æskuleg
Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Samskiptahæfni, jákvæðni og sveigjanleiki
Íslenskukunnátta er skilyrði
Responsibilities
Undirbúningur og framkvæmd fæðuþolsprófa í samstarfi við göngudeild ofnæmis A3 og Barnaspítala Hringsins
Samstarf við næringarfræðinga í eldhúsi Landspítala við undirbúning og útfærslu fæðuþolsprófa
Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu og faglegu samstarfi við aðrar heilbrigðisstéttir
Umsjón með næringarmeðferð og ráðgjöf fyrir sjúklinga á göngu- og legudeildum Landspítala
Gerð fræðsluefnis fyrir sjúklinga og aðstandendur og endurskoðun
Þátttaka í faglegu gæðastarfi næringarstofu
Leiðsögn nemenda í klínísku námi
Advertisement published3. November 2026
Application deadline13. November 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (29)
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á geðgjörgæslu 32C
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í bæklununarskurðlækningum barna
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á hjarta-, lungna-, augnskurðdeild og nýrnalækningadeild 12G
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á erfða- og sameindalæknisfræðideild
Landspítali
Landspítali
Sérhæfður starfsmaður við krufningar á meinafræðideild
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á kvenlækningadeild 21A
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunardeildarstjóri dag- og göngudeildar blóð- og krabbameinslækninga
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á innrennsliseiningu dagdeildar gigtarsjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtlasjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtla og efnaskipta
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á bráðalegudeild lyndisraskana
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á bráðalyflækningadeild A2 Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á bráðalegudeild lyndisraskana
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á skurðlækningadeild Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar á bráðalyflækningadeild A2 Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á skurðlækningadeild Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Ljósmóðir á fæðingarvakt
Landspítali
Landspítali
Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður á bæklunarskurðdeild AB5 Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á meðferðareiningu geð- og fíknisjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Heilbrigðisgagnafræðingur - Lyflækningar krabbameina
Landspítali
Landspítali
Skrifstofumaður - Lyflækningar krabbameina
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á almenna endurhæfingardeild aldraðra L2
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarnemar - Spennandi hlutastörf með námi á gjörgæslu Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliðar á nýja réttar- og öryggisgeðdeild á Kleppi
Landspítali
Landspítali
Ráðgjafar/ stuðningsfulltrúar á nýja réttar- og öryggisgeðdeild á Kleppi
Landspítali
Landspítali
Læknir - Tímabundið starf
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur - Heimaspítali barna
Landspítali
Landspítali
Interested in Nursing Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali
Landspítali
Interested in Medical Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali