Garðabær
Garðabær
Garðabær

Stærðfræðikennari í Garðaskóla

Garðaskóli í Garðabæ er unglingaskóli þar sem rúmlega 620 nemendur stunda nám í 8.-10. bekk. Í skólanum er lögð áhersla á að starfsfólk sérhæfi sig í vinnu með unglingum og kennslu faggreina. Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni: www.gardaskoli.is.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipuleggur nám og kennslu nemenda í 8.-10. bekk undir forystu fagstjóra stærðfræðideildar
  • Sinnir kennslu og hefur umsjón með nemendum
  • Vinnur að skólaþróun með stjórnendum og samstarfsfólki
  • Stuðlar að velferð nemenda og samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Tekur þátt í teymisvinnu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði grunnskóla
  • Lipurð og færni í mannlegum samskiptum ásamt metnaði í starfi
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Áhugi á skólaþróun
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
  • Góð tölvukunnátta
  • Reynsla af stærðfræðikennslu á unglingastigi og/eða í framhaldsskóla er æskileg
  • Reynsla af starfi í grunnskóla og/eða starfi með unglingum er æskileg
  • Þekking á uppeldisstefnunni Uppbygging sjálfsaga er æskileg
Advertisement published7. March 2025
Application deadline17. March 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Planning
Professions
Job Tags