Garðabær
Garðabær
Garðabær

Garðahraun auglýsir eftir stuðningsfulltrúum

Garðahraun auglýsir eftir drífandi og ábyrgu starfsfólki í sumarstarf barna með sérþarfir í Garðabæ. Mikilvægt er að viðkomandi hafi einlægan áhuga og ánægju af að vinna með börnum og unglingum.

Starfið felur í sér að veita börnum með sérþarfir stuðning í sumar og fylgja á hefðbundin sumarnámskeið í Garðabæ eða sértæk sumarnámskeið Sumarhrauns.

Stuðningsfulltrúar vinna í að lágmarki 7 vikur sem dreifast yfir vinnutímabil, frá byrjun júní til skólasetningu grunnskóla í ágúst í samráði við umsjónarmann.

Vinnutími er frá kl. 9-16 eða eftir skipulagi námskeiða og vinnuúrræða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita börnum og unglingum stuðning til þátttöku á leikja- og íþróttanámskeiðum yngri barna og í sumarstarfi unglinga
  • Vinna markvisst að því að auka félagsfærni, sjálfstæði og virkni þjónustuþega
  • Stuðla að jákvæðum og uppbyggilegum samskiptum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af störfum með börnum og unglingum með fötlun æskileg
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Menntun sem nýtist í starfi kostur
  • Frumkvæði og sjálfstæði í störfum
  • Fagleg vinnubrögð
  • Íslenska kunnátta æskileg
Advertisement published4. February 2025
Application deadline10. March 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Independence
Suitable for
Professions
Job Tags