Eldum rétt
Eldum rétt er netverslun sem stofnuð var árið 2014. Eldum rétt býður viðskiptavinum sínum matarpakka með uppskriftum og hráefni í réttu magni til að elda hollar og bragðgóðar máltíðir, með sem minnstri fyrirhöfn. Markmið Eldum rétt er að gera eldamennskuna skemmtilegri og samverustundir fjölskyldunnar fleiri og betri.
Í hverri viku geta viðskiptavinir raða saman réttum vikunnar í sinn matarpakka. Valið stendur á milli 22 rétta sem breytast í hverri viku og gerist fjölbreytnin því ekki mikið meiri. Með því að afhenda viðskiptavinum 2-5 rétti á sama tíma sparast bæði tími og orka. Öllum hráefnum er handpakkað svo hægt sé að tryggja hámarks ferskleika og gæði hverju sinni. Eldum rétt er leiðandi á þessum markaði og býður upp á ferska og holla lausn fyrir fjölskyldur og einstaklinga.
Pöntunarfrestur spilar lykilhlutverk í rekstri og þjónustu Eldum rétt. Viðskiptavinir panta með minnst fimm daga fyrirvara en með því fá þeir ferskari hráefni, meiri fjölbreytni, minni matarsóun og skilja eftir sig minna kolefnisfótspor. Í framleiðsluferlinu er tryggð lágmarks matarsóun þar sem pantað er nákvæmt magn hráefna frá birgjum og því er pakkað í rétta skammta til viðskiptavina.
Eldum rétt hefur gjörbylt neyslumynstri viðskiptavina sinna og eru nú mörg þúsund landsmanna sem borða Eldum rétt í hverri viku.
----
Eldum rétt is an online store founded in 2014. Eldum rétt offers its customers food packages with recipes and ingredients in the right amounts to cook healthy and tasty meals with as little effort as possible. The goal of Eldum rétt is to make cooking more fun and create more time for family moments.
Each week, customers can customize their meal packages by choosing from 22 dishes that change every week, ensuring a wide variety of options. By delivering 2-5 dishes to customers at the same time, both time and energy are saved. All ingredients are carefully hand-packed to ensure maximum freshness and quality every time. Eldum rétt is a leader in this market and provides a fresh and healthy solution for families and individuals.
The order deadline plays a key role in Eldum rétt's operation and service. Customers are required to place their orders at least five days in advance, ensuring that they receive fresher ingredients, more variety, generate less food waste, and have a smaller carbon footprint. In the production process, minimal food waste is guaranteed as the exact amount of raw materials is ordered from suppliers and packed in the right portions for customers.
Eldum rétt has revolutionised habits of its customers, with many thousands of people now enjoying Eldum rétt meals every week.
Snillingur í upplýsingatækni
Ertu lausnamiðaður einstaklingur með brennandi áhuga á stafrænum lausnum og hvernig þær geta aukið skilvirkni í rekstri? Þá erum við að leita að þér til að ganga til liðs við okkur og móta framtíðina með skapandi og stafrænum hætti.
Það sem við leitum að:
- Góð þekking á stafrænum lausnum og hvernig má nýta þær á áhrifaríkan hátt.
- Brennandi áhuga á nýsköpun og skilvirkni í rekstri.
- Skipulögð og lausnamiðuð nálgun á verkefni og áskoranir.
- Góð samskiptahæfni og geta til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi.
Við bjóðum upp á:
- Skemmtilegt og hvetjandi vinnuumhverfi.
- Tækifæri til að vinna að fjölbreyttum og skemmtilegum verkefnum.
- Sveigjanleg vinnubrögð og stuðning til að þróa hæfileika þína.
Ef þú hefur ástríðu fyrir tækni og lausnum sem gera vinnuumhverfið betra og skilvirkara, sendu okkur umsókn með ferilskrá og stuttum kynningarpósti þar sem þú segir okkur frá þér og áhuga þínum á starfinu.
Öll eru hvött til að sækja um.
Við hlökkum til að heyra frá þér!
Helstu verkefni og ábyrgð
- Bilanagreining
-
Eftirlit með gæðum gagna og að þau séu aðgengileg fyrir daglegan rekstur fyrirtækisins.
- Prófanir á forritum.
- Þverfagleg þróun á ferlum og stöðlum.
- Almenn tækniaðstoð á vinnustað.
- Bera ábyrgð á því að öll kerfi séu virk, uppfærð og nákvæm.
- Fara yfir ábendingar frá viðskiptavinum, forgangsraða og sjá til þess að úrbætur eigi sér stað.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð tölvuþekking.
- Gott skipulag.
- Góð þekking á upplýsingatæknikerfum.
- Reynsla á forritun er kostur.
- Sjálfstæði og frumkvæði í starfi.
- Framúrskarandi samskiptahæfni og jákvætt viðmót.
- Menntun sem nýtist í starfi kostur.
Advertisement published28. January 2025
Application deadlineNo deadline
Language skills
Icelandic
ExpertRequired
English
Very goodRequired
Location
Smiðjuvegur 4B, 200 Kópavogur
Type of work
Skills
Tech-savvyDrupalMicrosoft ExcelMicrosoft OutlookMicrosoft WordSharePointWindowsZendesk
Work environment
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)
SUMARSTÖRF Á FJÁRMÁLASVIÐI
Travel Connect
Bókari - hlutastarf
Tækniskólinn
Sérfræðingur á Úrræða og þjónustusviði
VIRK Starfendurhæfingarsjóður
Spennandi sumarstörf hjá TVG og Gáru
TVG-Zimsen
Verkstjóri á skrifstofu Vinnuskólans
Hafnarfjarðarbær
Við leitum að liðsauka í Fjallabyggð
Arion banki
Spennandi sumarstörf um allt land
Eimskip
Sölumaður
Cargow Thorship
Flutningmiðlari
DB SCHENKER á Íslandi
Project manager, construction project in Disko Bay Greenland
NunaGreen A/S
Starfsmaður í móttöku og skrifstofuumsjón
Endurskoðun og ráðgjöf ehf.
Fulltrúi á skrifstofu Sláturfélags Suðurlands, 50-100% starf
SS - Sláturfélag Suðurlands