Skrifstofa Alþingis
Skrifstofa Alþingis
Skrifstofa Alþingis

Laus störf í miðlun og fræðslu í almannatengsladeild

Nærð þú vel til barna og ungmenna og ert fær í að miðla fræðsluefni á lifandi og skemmtilegan hátt á vef og samfélagsmiðlum?

Við leitum að tveimur öflugum sérfræðingum til starfa í almannatengsladeild. Í starfinu felst meðal annars móttaka og leiðsögn innlendra og erlendra gesta, umsjón með Skólaþingi og Lýðræðislest. Einnig vinnsla efnis fyrir vef og samfélagsmiðla og upplýsingagjöf til almennings, ásamt aðstoð við viðburðahald. Starfsfólk deildarinnar tekur þátt í teymisvinnu þvert á starfseiningar og fær ríkuleg tækifæri til að kynnast líflegu og skemmtilegu starfsumhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka og leiðsögn gesta
  • Umsjón með Skólaþingi og Lýðræðislest
  • Efnisvinnsla fyrir vef
  • Gerð fræðslu- og kynningarefnis í máli og myndum
  • Þátttaka í samfélagsmiðlateymi
  • Upplýsingagjöf til almennings
  • Aðstoð við viðburðahald og önnur verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi, kennsluréttindi kostur
  • Reynsla af sambærilegu starfi
  • Framúrskarandi vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti
  • Önnur tungumálakunnátta kostur
  • Reynsla af ljósmyndun, myndbandagerð og grafískri hönnun kostur
  • Sjálfstæð, skapandi og lausnamiðuð hugsun  
  • Skipulagshæfni og nákvæmni í vinnubrögðum
  • Jákvæðni, sveigjanleiki og samskiptahæfni
Advertisement published7. March 2025
Application deadline17. March 2025
Language skills
EnglishEnglish
Required
Expert
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Kirkjustræti 10, 101 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.TeachingPathCreated with Sketch.PhotographyPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.VideographyPathCreated with Sketch.Independence
Professions
Job Tags