Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Skóla- og frístundaliði í Drekasel - Hraunvallaskóli

Hraunvallaskóli óskar eftir að ráða skóla- og frístundaliða í 30-50% starf í frístundaheimilið Drekasel

Um er að ræða starf sem felur í sér stuðning og aðstoð við nemendur í frístundaheimilinu Drekaseli sem er frístundaheimili fyrir börn með einhverfu frá kl. 13:00-16:30 virka daga. Sérstök áhersla í starfinu er að koma til móts við öll börn og mikilvægt er að umsækjandi hafi jákvæða afstöðu til nemenda og tiltrú á getu hvers og eins.

Hraunvallaskóli hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Skólinn starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga.

Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta, samvinna og ábyrgð. Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.hraunvallaskoli.is

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Aðstoðar við faglegt starf með nemendum
  • Starfar samkvæmt leiðsögn frá næsta yfirmanni
  • Stuðlar að góðum aga og jákvæðum samskiptum
  • Fylgist með og aðstoðar nemendur í leik og starfi
  • Leitast við að virkja sem flesta óháð getu eða þroska í fjölbreytt verkefni og taka fullan þátt í þeim verkefnum og viðburðum sem eru skipulögð
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af starfi með börnum er æskileg
  • Íslenskukunnátta A2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
  • Almenn tölvukunnátta
  • Mikill áhugi og metnaður til að starfa með börnum
  • Uppbyggjandi í samskiptum, sveigjanleiki og mikil samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Stundvísi og samviskusemi

Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars Jóhann Imsland skólastjóri, [email protected], Aðalbjörg Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri, [email protected] og Arnbjörg Mist Ásgeirsdóttir deildarstjóri Tómstundamiðstöðvar, [email protected] eða í síma 590 2800.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 19. október 2026.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Advertisement published12. October 2026
Application deadline19. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Drekavellir 9, 221 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags