
Dalvíkurbyggð
Dalvíkurbyggð er tæplega 2000 manna sveitafélag við Eyjafjörð. Þar er blómlegt atvinnulíf, öflugt menningarlíf og aðstaða til íþróttaiðkunar framúrskarandi. Umhverfið er sérlega fjölskylduvænt og aðstæður til útivistar með besta móti.

Frístund: frístundarleiðbeinandi
Frístund óskar eftir að ráða frístundarleiðbeinanda í u.þ.b. 45% starfshlutfall í frístund og sumarfrístund (starfshlutfall eykst á opnunartíma sumarfrístundar), en um framtíðarstarf er að ræða. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar um starfið:
Meginmarkmið starfsins er að bjóða upp á innihaldsríkt og þroskandi frístundastarf fyrir börn á aldrinum 6 – 9 ára eftir að hefðbundnum skóladegi barna lýkur. Markmið starfsins er að efla félags- og samskiptafærni barna í gegnum leik og starf frístundar. Starfsfólk frístundar leitast við að mæta börnum eftir þeirra þörfum, til að efla sjálfstraust, sjálfsstæði og félagsfærni þeirra. Starfmaður þarf að hafa Íslenskukunnáttu á stigi A2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiðbeina og styðja börn í leik og starfi.
- Skipuleggja faglegt starf og leiða fjölbreyttar og skapandi frístundastundir fyrir börn.
- Tryggja öryggi og vellíðan þátttakenda í öllu starfi.
- Stuðla að samstarfi við foreldra, skóla og aðra samstarfsaðila innan sveitarfélagsins.
- Fylgja stefnu Dalvíkurbyggðar í frístundamálum og leggja sitt af mörkum til þróunar starfsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
- Áhugi að vinna með börnum.
- Góð hæfni í samskiptum, samvinnu og leiðsögn hópa.
- Frumkvæði, ábyrgðartilfinning og skipulagshæfni.
- Jákvætt viðhorf, sveigjanleiki og færni til að takast á við fjölbreytt verkefni.
- Íslenskukunnátta á stigi A2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Hreint sakavottorð samkvæmt lögum.
Advertisement published7. October 2026
Application deadline20. October 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Dalvík , 620 Dalvík
Type of work
Skills
Human relationsCare (children/elderly/disabled)
Suitable for
Professions
Job Tags
Other jobs (1)
Similar jobs (6)

Frístundaleiðbeinandi í félagsmiðstöð - Stöðin (Stöðvarfjörður)
Fjarðabyggð

Félagsmiðstöðin Garðalundur - forstöðumaður
Garðabær

Frístundaleiðbeinandi í félagsmiðstöðina Hellinn
Frístundamiðstöðin Miðberg

Leikskólinn Naustatjörn: starfsmaður í leikskóla
Akureyri

Starfskraftur í frístund í Hjallastefnunni í Hafnarfirði
Hjallastefnan

Höfuð-Borgin - sértæk félagsmiðstöð
Höfuð-borgin sértæk félagsmiðstöð