Akureyri
Akureyri
Akureyri

Leikskólinn Naustatjörn: starfsmaður í leikskóla

Leikskólinn Naustatjörn óskar eftir að ráða starfsmann í leikskóla í 80% til 100% stöður. Um ótímabundna stöðu er að ræða.

Sé starfshlutfall minna en 100% felur starfið í sér að einhverja daga í viku verði viðvera til kl. 16, þó aðrir dagar séu styttri.

Æskileg starfsbyrjun er sem fyrst eða 1. nóvember 2026 eða eftir samkomulag.

Í Naustatjörn er lögð áhersla á að nemendur fái að kljást við margvísleg verkefni í gegnum sjálfssprottinn leik og að þeir læri af eigin reynslu, virkni og áhuga.

Áhersluþættir skólans eru leikurinn, UNICEF og Jákvæður agi. Aðrir áhersluþættir eru náttúra og umhverfi og lífsspeki Fisksins.

Einkunnarorð skólans eru: FESTA

Félagsfærni – Endurnýting – Sjálfstæði – Tillitssemi – Athvarf.

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn á www.naustatjorn.akureyri.is

Áhugasama bjóðum við velkomna í heimsókn.

Næsti yfirmaður starfsmanns er deildarstjóri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinna að uppeldi og menntun barna. Fylgjast vel með velferð þeirra og hlúa að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
  • Taka þátt í gerð skólanámskrár og mati á starfsemi leikskólans undir stjórn deildarstjóra og/eða skólastjóra.
  • Taka þátt í faglegu starfi skólans undir stjórn deildarstjóra og/eða skólastjóra.
  • Vinna í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna. Sitja fundi sem haldnir eru á vegum leikskólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Óskað er eftir sjálfstæðum, ábyrgum og jákvæðum einstaklingum.
  • Mikilvægt er að þeir eigi auðvelt með mannleg samskipti og séu tilbúnir til að takast á við skemmtilegt og krefjandi starf með börnum.
  • Viðkomandi þurf að vera sveigjanlegur í starfi og vera tilbúinn að ganga í ýmis störf.
  • Reynsla af starfi með börnum er kostur.
  • Gott vald á íslensku, bæði í rituðu og töluðu máli, er nauðsynlegt.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Advertisement published1. October 2026
Application deadline15. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Geislagata 9, 600 Akureyri
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.HonestyPathCreated with Sketch.CreativityPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.TeachingPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags