
Umsjónarkennari í 1. bekk
Hólabrekkuskóli óskar eftir umsjónarkennara í fyrsta bekk. Áhersla er lögð á leiðsagnarnám, teymiskennslu, fjölbreytta gagnreynda kennsluhætti og uppbyggileg samskipti. Sérstök áhersla er lögð á Pals lestrarkennslu og markvissa málörvun.
Hólabrekkuskóli er heildstæður grunnskóli frá 1. – 10. bekk með rúmlega 500 nemendur og um 80 starfsmenn. Sérstök áhersla er lögð á mál og læsi, kennslu Pals og Starra orðaforðakennslu.
Ef þú ert framsækinn umsjónarkennari og hefur brennandi áhuga á fjölbreyttu skólastarfi þá viljum við í Hólabrekkuskóla endilega fá þig til liðs við okkur.
· Leiðsagnarnám, teymiskennsla og notkun kennsluaðferða sem skila árangri.
· Annast kennslu nemenda í samráði við skólastjórnendur og foreldra.
· Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
· Vinna að jákvæðum skólabrag ásamt starfsfólki skólans.
· Önnur afmörkuð verkefni innan skólans.
· Leitað er að jákvæðum, lausnamiðuðum og metnaðarfullum fagmanni.
· Framúrskarandi lipurð og færni í mannlegum samskiptum.
· Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
· Þekking og hæfileikar til að vinna að framsæknu skólastarfi.
· Íslenskukunnátta á stigi C2 samkvæmt samevrópska matskvarðanum.
· Stundvísi og samviskusemi.
- Heilsuræktarstyrkur
- Samgöngusamningur
- Frítt í sund með ÍTR kortinu
- Bókasafnskort og frítt á söfn með menningarkortinu
Icelandic










