

Velferðarsvið – Sérfræðingur í barnaverndarþjónustu / Félagsráðgjafi
Reykjanesbær leitar eftir öflugum og metnaðarfullum einstaklingum í 100% starf til að ganga til liðs við hóp metnaðarfullra sérfræðinga í barnaverndarteymi velferðarsviðs. Reykjanesbær leggur áherslu á að tryggja réttindi allra barna til öryggis, verndar og velferðar og að allir sem vinni með börnum leggi áherslu á réttindi barns og að veita börnum og fjölskyldum þeirra framúrskarandi þjónustu.
Starfið felur í sér verkefni á grundvelli barnaverndarlaga nr. 80/2002, vinnu í þágu farsældar barna skv. l.nr. 86/2021, teymisvinnu, hugmyndafræði Signs of safty og áherslu á þverfaglegt samstarf við aðra sérfræðinga sem koma að málum barna og fjölskyldna.
Reykjanesbær er fjölskylduvænn og framsækinn vinnustaður sem bíður upp á spennandi tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu þjónustu og þverfaglegt samstarf með metnaðarfullum hópi fagmanna.
Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og mikilvægt er að viðkomandi endurspegli þau gildi í sínum störfum.
- Móttaka barnaverndartilkynninga, skráning þeirra og könnun mála
- Vinnsla barnaverndarmála
- Vinnsla fósturmála
- Ráðgjöf og stuðningur til barna og foreldra
- Samþætting þjónustu
- Teymisvinna og þverfaglegt samstarf við helstu samstarfsaðila barnaverndar
- Virk þátttaka í uppbyggingu og þróun barnaverndarstarfs hjá sveitarfélaginu
- Félagsráðgjafanám til starfsréttinda. Til greina kemur að ráða sérfræðinga með aðra menntun sem nýtist í starfi.
- Viðbótarmenntun á sviði barnaverndar og farsældar barna kostur
- Starfsreynsla í barnavernd er kostur
- Reynsla af teymisvinnu og þverfaglegu samstarfi er æskileg
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti er skilyrði. Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
- Rík þjónustulund, frumkvæði og metnaður til að veita framúrskarandi þjónustu
- Geta til að vinna undir álagi er mikilvæg
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög
- Bókasafnskort
- Gjaldfrjáls aðgangur í sund
- Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
- Gjaldfrjáls aðgangur í strætó
Icelandic










