

Velferðarsvið – Teymisstjóri í Barna- og fjölskylduteymi
Langar þig að leiða þjónustu sem skiptir máli?
Barna- og fjölskylduteymi Reykjanesbæjar leitar að öflugum og framsýnum stjórnanda sem hefur metnað til að hafa jákvæð áhrif á velferð barna og fjölskyldna.
Við leitum að leiðtoga sem vill leiða innleiðingu farsældar barna, efla samþætta þjónustu og þróa starfsemi teymisins í öflugu og þverfaglegu starfsumhverfi.
Barna- og fjölskylduteymið gegnir lykilhlutverki í þjónustu við börn og fjölskyldur sem þurfa sérhæfðan stuðning, ráðgjöf og samhæfða þjónustu. Áhersla er lögð á snemmtækan stuðning, heildstæða nálgun, þverfaglegt samstarf og lausnamiðað vinnulag.
Starfið heyrir undir sviðsstjóra velferðarsviðs.
Velferðarsvið Reykjanesbæjar
Velferðarsvið Reykjanesbæjar er öflugur og metnaðarfullur vinnustaður þar sem fjölbreyttur hópur sérfræðinga vinnur saman að því að efla velferð og lífsgæði íbúa. Þjónusta sviðsins nær til íbúa á öllum æviskeiðum og byggist á fagmennsku, virðingu og ríkri þjónustulund.
Við störfum í samræmi við gildi Reykjanesbæjar, virðingu, eldmóð og framsækni og leggjum áherslu á jákvætt starfsumhverfi þar sem samstarf, frumkvæði og faglegur metnaður fá að njóta sín.
Framtíðarsýn okkar er að veita heildstæða, samþætta og skilvirka þjónustu þar sem vellíðan íbúa, farsæld barna og kraftur fjölbreytileikans eru leiðarljós í daglegu starfi.
- Veita barna- og fjölskylduteymi faglega og rekstrarlega forystu.
- Bera ábyrgð á daglegri starfsemi teymisins, mannaforráðum og starfsþróun starfsfólks.
- Tryggja að starfsemi og verklag séu í samræmi við lög, reglugerðir, stefnur og samþykktir sveitarfélagsins.
- Veita ráðgjöfum og málstjórum faglegan stuðning, handleiðslu og ráðgjöf við vinnslu mála.
- Taka þátt í vinnslu flókinna mála í samstarfi við málstjóra og aðra fagaðila.
- Leiða innleiðingu markmiða laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna í verklag og þjónustu teymisins.
- Leiða innleiðingu Signes of Safety (Merki um öryggi) í starfsemi og verklag teymisins.
- Stýra þróunar- og umbótaverkefnum á sviði þjónustu við börn og fjölskyldur.
- Annast gerð fjárhagsáætlunar, rekstrareftirlit og greiningarvinnu.
- Taka þátt í stefnumótun og áframhaldandi þróun velferðarþjónustu Reykjanesbæjar.
- Efla og viðhalda samstarfi við skóla, leikskóla, heilbrigðisþjónustu, Barna- og fjölskyldustofu, Barna- og unglingageðdeild og aðra þjónustuveitendur barna.
- Meistarapróf í félagsráðgjöf eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Framhaldsnám á sviði farsældar barna er æskilegt og framhaldsnám í opinberri stjórnsýslu er kostur.
- Reynsla af stjórnun, mannaforráðum og teymisvinnu.
- Þekking og reynsla af þjónustu við börn og fjölskyldur.
- Þekking og reynsla í starfi með börnum með langvarandi stuðningsþarfir.
- Góð þekking á lögum og regluverki sem varða starfssviðið.
- Reynsla af starfi innan stjórnsýslu sveitarfélaga er kostur.
- Reynsla af innleiðingu breytinga-, þróunar- eða umbótaverkefna er kostur.
- Sterk leiðtogahæfni og hæfni til að byggja upp traust og árangursríkt samstarf.
- Mjög góð samskipta-, skipulags- og greiningarfærni.
- Frumkvæði, fagmennska og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Góð íslenskukunnátta bæði í töluðu og rituðu máli.
- Bókasafnskort
- Gjaldfrjáls aðgangur í sund
- Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
- Gjaldfrjáls aðgangur í strætó
Icelandic










