Leikskólinn Hamrar
Leikskólinn Hamrar

Leikskólakennari - Hamrar

Viltu vinna á frábærum vinnustað, við í leikskólanum Hömrum erum að leita að leikskólakennara og erum að bíða eftir þér.

Leikskólinn Hamrar í Grafavogi auglýsir eftir leikskólakennara í 100% starf. Næsti yfirmaður er deildarstjóri skólans.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfssvið: 

Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og stefnu viðkomandi sveitarfélags.

Uppeldi og menntun:

Vinnur að uppeldi og menntun barnanna. Fylgist vel með velferð þeirra og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.

Stjórnun og skipulagning:

▪ Tekur þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra.

▪ Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra.

Foreldrasamvinna:

▪ Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna.

▪ Situr foreldrafundi, sem haldnir eru á vegum leikskólans.

Annað:

▪ Tekur þátt í samstarfi við ýmsar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast leikskólanum í samráði við deildarstjóra.

▪ Situr starfsmannafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um og varðar starfsemi leikskólans.

▪ Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum.

Menntunar- og hæfniskröfur

Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar

Fríðindi í starfi

Í Hömrum er full vinnustytting eða 4 klst. á viku.

Heilsuræktarstyrkur

Samgöngustyrkur noti það umhverfisværnar leiðir í og úr vinnu

Það er frítt í sund í laugum borgarinnar fyrir starfsfólk

Menningarkort

Frítt fæði

Börn starfsfólks í leikskólum Reykjavíkur fá forgang í leikskóla í Reykjavík

Advertisement published24. August 2026
Application deadline30. September 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Hamravík 12, 112 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Teacher
Work environment
Suitable for
Professions
Job Tags