

Deildarstjóri í Leikskólann Lundarsel-Pálmholt
Leikskólinn Lundarsel-Pálmholt á Akureyri óskar eftir að ráða deildarstjóra í 100% ótímabundna stöðu. Æskilegt er að viðkomandi hefji störf í janúar 2027 en byrjunardagur getur verið eftir samkomulagi.
Lundarsel-Pálmholt er sjö deilda leikskóli á tveimur starfsstöðvum, Lundarsel við Hlíðarlund og Pálmholt neðra við Þingvallarstræti. Aldur barna er frá 12 mánaða til sex ára.
Auglýst er eftir deildarstjóra á deild með elstu börnunum í Lundarseli.
Í Lundarseli-Pálmholti leggjum við áherslu á lærdómsríkt umhverfi sem hvetur til sköpunar, umræðna og rannsókna. Við vinnum út frá áhuga barnanna og undrun þeirra á tilverunni. Við lítum á leikinn sem hornstein leikskólastarfsins og leggjum því mikla áherslu á að leikgleði barnanna fái notið sín í daglegu lífi leikskólans. Til að skapa gott andrúmsloft, tryggja öryggi og velferð allra í leikskólanum er unnið með SMT skólafærni.
Einkunnaorð skólans eru: Glaðir spekingar sem leika og læra saman.
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn https://lundarsel.karellen.is/
Deildarstjóri er stjórnandi á sinni deild og hluti af tíu manna stjórnendateymi leikskólans.
Vilt þú vera með okkur í liði og leggja þitt af mörkum?
- Stjórnun, skipulagning og fagleg ábyrgð á starfi deildarinnar.
- Dagleg verkstjórn og upplýsingamiðlun.
- Forysta og samstarf innan starfsmannahópsins.
- Skipulag og stjórnun deildarfunda.
- Ábyrgð á að unnið sé samkvæmt skólanámskrá og starfsáætlun.
- Samstarf og samskipti við foreldra.
- Þátttaka í stjórnendateymi, þróunarstarfi og mati á starfi leikskólans.
- Að tryggja að þörfum hvers barns sé mætt.
- Háskólapróf í leikskólakennarafræðum eða önnur háskólamenntun (B.Ed., BS, BA) sem nýtist í starfi.
- Reynsla af starfi í leikskóla.
- Jákvæðni, sjálfstæði, ábyrgð og sveigjanleiki.
- Góð samskiptafærni, frumkvæði og hæfni til að vinna í teymi.
- Góð íslenskufærni í ræðu og riti.
- Góð tölvufærni.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Icelandic
















