Heilsuleikskólinn Álfasteinn
Heilsuleikskólinn Álfasteinn
Heilsuleikskólinn Álfasteinn

Leikskólakennari

Heilsuleikskólinn Álfasteinn í Hörgársveit óskar eftir að ráða kennara eða starfsfólk með háskólamenntun sem nýtist í starfi í 100% tímabundna stöðu frá 1. desember nk. með möguleika á áframhaldandi ráðningu.

Einkunnarorð skólans eru “Með sól í hjarta” Mikil áhersla er lögð á gleði og vellíðan barna, næringu, hreyfingu, listsköpun og frjálsan leik. Einnig er unnið með jákvæðan aga (Positive Discipline) og er skólinn á Grænni grein. Við leitum eftir fólki sem hefur gleði og ánægju af að starfa með börnum. Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Vinnuumhverfi leikskólans er gott, nýtt húsnæði, góður starfsandi og „Betri vinnutími“ er tekinn í haustfríi, vetrarfríi, dymbilviku, milli jóla og nýjárs, auk þess lokar leikskólinn 14:15 á föstudögum. Starfsfólk Hörgársveitar á kost á lýðheilsukorti í formi árskortar í Jónasarlaug á Þelamörk.

Helstu verkefni og ábyrgð:

· Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna

· Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs

· Að taka þátt í foreldrasamstarfi í samráði við deildarstjóra

· Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

· Starfsleyfi sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)

· Reynsla af uppeldis og kennslustörfum æskileg

· Jákvæðni, félagslyndi og góð færni í samskiptum

· Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður

· Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

· Mjög góð færni í íslensku

· Hreint sakavottorð

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags leikskólakennara. Starfið hentar öllum kynjum. Við ráðningu eru jafnréttissjónarmið jafngild öðrum málefnalegum sjónarmiðum og hvetjum við áhugasama að sækja um óháð kyni og uppruna. Til greina kemur að ráða leiðbeinendur fáist ekki kennarar í starfið og eru þá laun samkvæmt kjarasamningi Samabands ísl. sveitarfélaga.

Umsóknarfrestur er til og með 18. október nk. og skal umsóknum skilað, ásamt ferilskrá á [email protected]

Upplýsingar gefur Hugrún Hermannsdóttir skólastjóri í síma 460-1760 eða á netfangið [email protected]

Advertisement published12. October 2026
Application deadline19. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Lónsbakki 152555, 601 Akureyri
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.TeacherPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.Patience
Professions
Job Tags