Leikskólinn Maríuborg
Leikskólinn Maríuborg
Leikskólinn Maríuborg

Verkefnastjóri listasmiðju (atelierista)

Langar þig að vera verkefnastjóri listasmiðju (atelierista) í leikskólanum Maríuborg? Hefur þú áhuga á skapandi starfi, listum, menningu og námi barna? Þá er þetta staðan fyrir þig!

Í leikskólanum Maríuborg er skapandi og blómlegt faglegt starf þar sem falleg og hlý samskipti eru í forgrunni.

Leikskólinn Maríuborg auglýsir eftir verkefnastjóra listasmiðju í fullt starf. Ráðning er tímabundin fram í nóvember 2027 en möguleiki er á áframhaldandi ráðningu.

Leikskólinn er staðsettur í Maríubaug 3 í Grafarholti. Skólinn er bjartur og fallegur og skiptist í fjórar deildir, þar af íþróttasal, tvær kubbastofur og listasmiðju, auk starfsmannarýmis og eldhúss. Búið er að endurnýja búnað og aðstöðu í leikskólanum frá toppi til táar. Í Maríuborg er lögð áhersla á hæglæti, virka nærveru kennara og töfrandi námsrými. Gildin okkar eru leikur, samskipti og námsgleði og birtast þau skýrt í öllu faglegu starfi leikskólans.

Listasmiðjustjórinn í Maríuborg, eða atelierista eins og það er stundum kallað, er ein af lykilmanneskjum leikskólans og partur af stjórnendateymi hans. Meginverkefni verkefnastjóra listasmiðju er að stuðla að skapandi og listrænu námi barna í tengslum við Reggio Emilia hugmyndafræðina þar sem ferlið er mikilvægara en niðurstaðan og börn fá tækifæri til að prófa sig áfram með skapandi og opinn efnivið á sínum forsendum með stuðningi frá kennara. Verkefnastjóri vinnur þvert á deildir, tekur hóp barna í listasmiðjuvinnu og passar að öll börn hafi jafnt aðgengi að efniviði og rými listasmiðjunnar.

Áherslan á hæglæti er okkur hugleikin þar sem tími er gefinn til sjálfsprottins leiks og börn fá að upplifa og skynja í rólegheitum með virkri nærveru frá kennara. Listasmiðjan okkar er blómleg og björt og bíður upp á ótal mörg tækifæri. Náttúrufegurðin umkringir einnig leikskólann og skapar einstakt tækifæri fyrir börnin til náms og skynjunar. Útisvæðið okkar er því fullt af töfrum sem gaman er að upplifa. Tækifærin til sköpunar eru allsstaðar!

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipuleggur og stýrir verkefnum listasmiðju í samráði við leikskólastjóra og deildarstjóra með áherslu á skynjun barna, möguleikahugsun og skapandi starf.
  • Vinnur hópaskipt með börnunum og skapar rými og tíma fyrir þau til upplifunar, listsköpunar og skynjunar.
  • Skipuleggur ferðir á listasöfn og aðrar menningarstofnanir sem partur af námi barnanna.
  • Sér um að gera áætlanir og mat sem tengjast verkefnum listasmiðju sem og skráningar á námi barnanna.
  • Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, aðalnámskrá leikskóla og Menntastefnu Reykjavíkur, Draumar geta ræst.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara eða önnur háskólamenntun í listgreinum skilyrði.
  • Jákvæðni og frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Hæfni og sveigjanleiki í samskiptum.
  • Ábyrgð og áreiðanleiki.
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum er skilyrði.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
Fríðindi í starfi
  • 36 stunda vinnuvika miðað við fullt starf
  • Sund- og menningarkort
  • Afsláttur af leikskólagjaldi fyrir barn í leikskóla í Reykjavík
  • Samgöngusamningur
  • Boðið er upp á heitan mat í hádeginu, morgunmat og síðdegishressingu.
Advertisement published7. October 2026
Application deadline21. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Maríubaugur 3, 113 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.TeacherPathCreated with Sketch.TeachingPathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.PaintingPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Punctual
Suitable for
Work environment
Professions
Job Tags