Landakotsskóli
Landakotsskóli
Landakotsskóli

Umsjónarkennari í Landakotsskóla

Landakotsskóli óskar eftir að ráða metnaðarfullum umsjónarkennara. Um er að ræða starf í skemmtilegu og öflugu lærdómssamfélagi þar sem lögð er áhersla á framúrskarandi menntun, skapandi skólastarf, markvissa skólaþróun og fagmennsku.

Helstu verkefni og ábyrgð

·       Kennsla og umsjón.  

·       Samstarf við aðra kennara.  

·       Virkt samstarf við foreldra um nám, líðan og velferð nemenda.  

·       Samvinna við starfsfólk skólans um fagleg málefni og þróun skólastarfs. 

Menntunar- og hæfniskröfur

·       Kennaramenntun og leyfisbréf fyrir kennslu í grunnskóla. 

·       Reynsla af kennslu á grunnskólastigi er æskileg. 

·       Góða skipulagshæfni og einlægur áhugi á að vinna með börnum á fjölbreyttan og skapandi hátt.

·       Áhugi á því að vinna að nýsköpun með áherslu á STEAM, forritun og stafrænum            miðlun  er kostur.

·       Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum. 

·       Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi. 

·       Góð íslenskukunnátta er skilyrði 

·       Góð enskukunnátta er æskileg 

·       Hreint sakavottorð 

Fríðindi í starfi

Við bjóðum  

·       Fjölbreytt starf í skapandi og metnaðarfullu umhverfi þar sem lögð er áhersla á                       fagmennsku, samstarf og stöðuga þróun. 

·       Öflugt alþjóðlegt samfélag fagfólks á sviði menntunar.   

·       Tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á skólaþróun. 

Um Landakotsskóla

Landakotsskóli ses. er sjálfstæður skóli sem var stofnaður árið 2005 og er fyrir nemendur  1.-10. bekk, auk deildar fimm ára barna.

Í skólanum eru um 360 nemendur í tveimur deildum:

·       almenn deild sem fylgir Aðalnámskrá og þar sem kennt er á íslensku.

·       alþjóðleg deild sem fylgir Cambridge námskrá og þar sem kennt er á ensku.

Við skólann starfa um 50 kennarar og 30 aðrir starfsmenn. Skólasamfélagið er fjölbreytt, alþjóðlegt og einkennist af góðum starfsanda, metnaði og sterkri liðsheild.

Lögð er rík áhersla á læsi, leiðsagnarnám, listkennslu og skapandi starf þvert á faggreinar, samhliða öflugri kennslu í kjarnagreinunum íslensku, tungumálum og stærðfræði, nemendum á unglingastigi gefst kostur að taka valgreinar sem geta verið metnar á framhaldsskólastigi. 

Samskipti, samvinna, sköpun, framtíðarhugsun og vellíðan eru leiðarljós í skólastarfinu. Markmið skólans er að nemendur nái að vaxa og dafna í skólanum, verði undirbúnir til að ákvarða eigin framtíð og vera virkir þátttakendur í samfélaginu.

Umsókn

Í Landakotsskóla er leitast við að fá til starfa öfluga og metnaðarfulla kennara á öllum sviðum og veita þeim stuðning til árangurs og vaxtar í starfi.

Umsókn skal fylgja: 

·       starfsferilskrá  

·       kynningarbréf með upplýsingum um reynslu og menntun 

·       leyfisbréf kennara 

Sótt er um starfið á alfred.is. 

Nánari upplýsingar veitir 
Sigrún Birgisdóttir, skólastjóri 
[email protected] 

Við hvetjum öll áhugasöm til að sækja um.

 

Advertisement published6. October 2026
Application deadline23. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Túngata 15, 101 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags