Fjarðabyggð
Fjarðabyggð
Fjarðabyggð

Skjala- og þjónustufulltrúi

Ert þú dugmikill einstaklingur með reynslu af almenn skrifstofustörfum s.s. ritvinnslu, símavörslu, skjalavörslu, skýrslugerð og undirbúning og móttöku vegna funda og námskeiða? Vilt þú taka þátt í starfi öflugs og samheldins hóps starfsmanna fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar? Þá erum við að leita að þér!

Fjarðabyggð er öflugt, vaxandi samfélag sem leggur mikla áherslu á velferð og málefni allra íbúa. Á fjölskyldusviði Fjarðabyggðar er lögð áhersla á þverfaglega vinnu og stuðning starfsmanna í teymisstarfi við úrlausn margþættra verkefna sem tengjast stuðningsþörfum ólíkra einstaklinga með það markmið að efla lífsgæði og hagsæld þeirra.

Starfslýsing: Starf skjala- og þjónustufulltrúi heyrir undir sviðstjóra fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar. Starfsmaður sinnir mótöku þjónustuþega ásamt almenn skrifstofustörfum s.s. ritvinnslu, símavörslu, skjalavörslu, skýrslugerð og undirbúning og móttöku vegna funda og námskeiða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stoðþjónusta við starfsmenn, stjórnendur og ráðgjafa fjölskyldusviðs.
  • Umsjón með móttöku, skráningu og vísan skjala á ábyrgðaraðila í skjalakerfi.
  • Tekur við símtölum þjónustunotenda fjölskyldusviðs, aðstoðar og leiðbeinir þeim skv. þjónustulýsingu.
  • Afleysing vegna verkefna er heyra undir starf afgreiðslufulltrúa og símavarðar, þ.m.t. undirbúningur funda.
  • Utanumhald og skipulag vegna námskeiða fyrir skólastofnanir Fjarðabyggðar.
  • Sér um að rita fundi að beiðni sviðstjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Framhaldsskólamenntun.
  • Reynsla af þjónustu- og skrifstofustörfum.
  • Reynsla og þekking í notkun upplýsingatæknikerfa
  • Góð íslenska og íslensk ritfærni, önnur tungumálakunnátta er kostur
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og þjónustulipurð.
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði.
Fríðindi í starfi
  • Vinnutímastytting
  • Íþrótta- og tómstundarstyrkur
Advertisement published29. October 2024
Application deadline2. December 2024
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Hafnargata 2, 730 Reyðarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags