

Sjúkraliðar á nýja bráðamatsdeild
Viltu taka þátt í að byggja upp nýja þjónustu frá grunni og hafa áhrif á þróun hennar?
Við leitum að metnaðarfullum og áhugasömum sjúkraliðum til starfa á nýrri bráðamatsdeild. Þetta er einstakt tækifæri til að taka þátt í mótun deildar þar sem gæði, fagmennska og teymisvinna er í forgrunni.
Bráðamatsdeildin er ný og spennandi viðbót við bráðaþjónustu Landspítala, skipulögð að breskri fyrirmynd. Um er að ræða 20 rúma sólarhringsdeild þar sem þverfaglegt teymi sinnir sjúklingum með bráð veikindi á sviði lyflækninga.
Áhersla er lögð á:
-
Skjótt og markvisst mat sjúklinga
-
Samþætta teymisvinnu
-
Skýra og árangursríka verkferla
Hér gefst tækifæri til að:
-
Hafa áhrif á þróun verklags og þjónustu frá fyrsta degi
-
Vinna í kraftmiklu og lærdómsríku umhverfi
-
Efla þína faglegu færni
Starfið er fjölbreytt og krefjandi og gefur mikla möguleika til starfsþróunar.
Starfshlutfall er samkomulag, unnið er í vaktavinnu.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Einstaklingsmiðuð hjúkrun í samvinnu við aðra fagaðila
- Þátttaka í teymisvinnu í greiningarferli og meðferð
- Þróun ferla og verkefna á nýrri deild
- Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu innan deildar og í samvinnu við aðrar deildir
- Íslenskt sjúkraliðaleyfi
- Faglegur metnaður og sjálfstæði í starfi
- Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
- Áhugi á að starfa í krefjandi og fjölbreyttu umhverfi
- Góð íslenskukunnátta er æskileg
- Reynsla af bráðaþjónustu er æskileg
Icelandic

















































