

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á almenna endurhæfingardeild aldraðra
Við leitum eftir framsæknum hjúkrunarfræðingi með brennandi áhuga á stjórnun, umbótavinnu og endurhæfingu aldraðra í starf aðstoðardeildarstjóra á almenna endurhæfingardeild aldraðra, L2 á Landakoti.
Á deildinni fer fram endurhæfing fyrir aldraða í kjölfari bráðra veikinda. Markmið endurhæfingar er að einstaklingar nái bættri hreyfigetu og geti sjálfstætt leyst af hendi sem flestar athafnir daglegs lífs.
Starfið felur í sér fjölbreytta hjúkrun og mikla teymisvinnu þar sem unnið er í góðu samstarfi við aðrar fagstéttir sem koma að meðferð og endurhæfingu sjúklinga innan og utan spítalans. Góður starfsandi er ríkjandi og tækifæri eru til að vaxa í starfi. Landakot er staðsett í rólegu og rótgrónu hverfi miðsvæðis í Reykjavík, andinn í húsinu er einstakur og nálægð við mannlíf miðborgarinnar er kostur eftir langa vinnudaga.
Hér er spennandi tækifæri fyrir hjúkrunarfræðing að fá reynslu í stjórnun en mikil gróska er á deildinni í gæða- og umbótaverkefnavinnu. Aðstoðardeildarstjóri er hluti af stjórnendateymi deildar og leysir deildarstjóra af í fjarveru hans.
Starfshlutfall er 100% og er starfið laust nú þegar eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Ef frekari upplýsinga er óskað má endilega hringja eða senda tölvupóst til Heiðu Bjarkar, deildarstjóra og meira en velkomið að koma í heimsókn og skoða aðstæður á okkar góða vinnustað.
Icelandic













































