Dalskóli
Dalskóli
Dalskóli

Sérkennari í grunnskólahluta Dalskóla

Dalskóli grunnskólahluti auglýsir eftir sérkennara til starfa.

Dalskóli er samrekinn leik-, grunnskóli ásamt frístundaheimilinu Úlfabyggð. Í skólanum eru rúmlega 500 börn á grunnskólaaldri frá 1.bekk - 10.bekk.

Skólinn er staðsettur í Úlfarsárdal í nýrri og glæsilegri byggingu neðst í dalnum.

Lögð er áhersla á sveigjanlega starfshætti og samvinnu. Í skólanum ríkir viðhorf virðingar fyrir einstaklingnum og sérkennum hans. Lögð er áhersla á lifandi, skemmtilegt og skapandi skólastarf. Skólinn starfar eftir hugmyndafræðinni um jákvæðan aga og er þróunarskóli í leiðsagnarnámi.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem allra fyrst. Við hvetjum þó alla áhugasama sérkennara að sækja um starfið.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinna með börnum sem þurfa stuðning
  • Leiðsögn og stuðningur til starfmanna
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
  • Vinna að einstaklingsnámskrá og fylgja henni eftir
  • Sinna verkefnum sem tengjast verkefnum innan skólans sem yfirmaður felur honum.
  • Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sérkennaramenntun eða önnur sambærileg menntun
  • Menntun og hæfni til almennrar kennslu með fjölbreyttar þarfir nemendahóps.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
  • Framúrskarandi hæfni í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
Fríðindi í starfi
  • Menningarkort- bókasafnskort
  • Samgöngustyrkur
  • Sundkort
  • Heilsuræktarstyrkur
Advertisement published31. January 2025
Application deadline16. February 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Úlfarsbraut 118-120 118R, 113 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags