Landsvirkjun
Landsvirkjun
Landsvirkjun

Sérfræðingur í teymi þróunar og auðlinda jarðvarma

Vilt þú taka þátt í að móta framtíð endurnýjanlegrar orku?

Við hjá Landsvirkjun vinnum markvisst að því að tryggja sjálfbæra og örugga orkuvinnslu til að mæta þörfum samfélagsins og stuðla að orkuskiptum.

Á sviði vinds og jarðvarma leitum við að metnaðarfullum sérfræðingi til að sinna fjölbreyttum verkefnum við jarðvarmastöðvar og rannsóknir á jarðhitaauðlindum Landsvirkjunar á Norðausturlandi.

Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni á vettvangi og rannsóknarstofu, allt frá sýnatökum og mælingum til gagnagreiningar og jarðefnafræðilegs eftirlits.

Þú verður hluti af þverfaglegu teymi sem vinnur að vöktun, rannsóknum og sjálfbærri nýtingu jarðhitaauðlinda. Skrifstofuaðstaða og rannsóknarstofa er í Kröflustöð en hægt er að sinna hluta starfsins í fjarvinnu frá öðrum starfstöðvum Landsvirkjunar.

Hvað felst í starfinu?

  • Að annast sýnatökur og mælingar í gufuveitum aflstöðva og á jarðhitasvæðum Landsvirkjunar
  • Að greina sýni, túlka niðurstöður og sinna efna- og jarðefnafræðilegu eftirliti
  • Að greina frávik og vinna að þróun og umbótum á mæliaðferðum og verklagi
  • Að hafa umsjón með mælitækjum, kvörðunum og gæðaskráningu
  • Að sinna rannsóknarstofuvinnu og rekstri rannsóknarstofu

Hefur þú eftirfarandi hæfni og reynslu?

  • Háskólamenntun í efnafræði, jarðefnafræði eða skyldu fagi svo sem verkfræði sem nýtist við reiknilíkanagerð eða gagnagreiningu
  • Þekkingu á tölulegum aðferðum, gagnavinnslu og forritun og reynsla af meðhöndlun stórra gagnasafna er kostur
  • Reynslu af sambærilegum verkefnum, mælitækjum eða rannsóknarstofuvinnu
  • Brennandi áhuga á jarðhita, mælingum og greiningu gagna
  • Nákvæm og skipulögð vinnubrögð með ríka áherslu á öryggismál
  • Góða greiningarhæfni og getu til að leysa tæknileg viðfangsefni
  • Hæfni til að vinna sjálfstætt jafnt sem í samstarfi við aðra

Hvernig vinnustaður er Landsvirkjun?

Landsvirkjun er orkufyrirtæki í eigu íslensku þjóðarinnar sem vinnur rafmagn úr endurnýjanlegum orkugjöfum, vatnsafli, jarðvarma og vindi. Við leggjum áherslu á fagmennsku, sjálfbærni og stöðugar umbætur. Við styðjum við starfsfólk okkar með símenntun, sveigjanleika og góðu starfsumhverfi þar sem jafnrétti, traust og samvinna eru í forgrunni.

Hljómar þetta spennandi?

Sendu okkur umsókn með ferilskrá og kynningarbréfi þar sem þú segir frá reynslu þinni og hvað kveikir áhuga þinn á starfinu. Fyrirspurnir má senda á netfangið [email protected].

Advertisement published11. November 2026
Application deadline22. November 2026
Language skills
No specific language requirements
Location
Kröfluvirkjun 153706, 660 Mývatn
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.Data analysisPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.ResearchPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Research data analysis
Work environment
Professions
Job Tags