Landsnet hf.
Landsnet hf.
Landsnet hf.

Sérfræðingur í viðhaldsstýringu

VIÐ HÖLDUM LJÓSUNUM Á LANDINU LOGANDI

Við leitum að metnaðarfullum og ábyrgum einstaklingi með frumkvæðishugsun til að sjá um áætlunargerð og skipulagningu verkefna sem snúa að rekstri og viðhaldi á flutningskerfi Landsnets. Viðkomandi kemur inn í öflugt teymi eignastýringar sem hefur það sameiginlega markmið að framúrskarandi árangur náist við rekstur flutningskerfisins. Meginstarfsstarfstöð er í Reykjavík en starfsvettvangur um allt land.

Okkar hlutverk er að undirbúa Landsnet fyrir framtíðina – hvort sem það felur í sér nýja tækni, aukinn raforkuflutning, nýja viðskiptavini eða breyttar áherslur í orkumálum. Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í þessari þróun og vinna að verkefnum sem skipta samfélagið máli, gæti þetta verið rétta starfið fyrir þig!

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Áætlunargerð fyrir eftirliti og viðhaldi á eignum flutningskerfisins
  • Undirbúningur verkefna og vikuskipulag vinnuflokka
  • Verkefnastjórnun smærri verkefna
  • Þátttaka í stöðugum umbótum og uppbygging eignastýringar
Menntunar- og hæfniskröfur

Við leitum að liðsfélaga sem er með

  • Menntun á sviði rafmagnsiðnfræði, tækni- eða verkfræði
  • Reynslu við störf á rafmagnssviði
  • Áhuga og reynslu af verkefnastýringu
  • Frumkvæði, drifkraft og sjálfstæði í starfi.
  • Jákvætt, uppbyggilegt og lausnamiðað viðhorf.
Fríðindi í starfi

Af hverju að velja Landsnet?

Hjá Landsneti starfar samhentur hópur fólks sem vinnur saman að því að tryggja stöðugan rekstur raforkukerfisins og stuðla að þróun og framtíðarsýn í orkumálum.

Við bjóðum skemmtilegt vinnuumhverfi með aðstöðu til líkamsræktar, frábæru mötuneyti, stöðuga þjálfun og fræðslu til starfsþróunar og tækifæri til að vinna með frábæru fólki að samfélagslega mikilvægum verkefnum!

Advertisement published7. May 2025
Application deadline22. May 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Project management
Work environment
Professions
Job Tags