
Air Atlanta Icelandic
Air Atlanta var stofnað árið 1986 og hefur verið í rekstri allar götur síðan. Félagið rekur fjórtán breiðþotur af gerðinni Boeing 747-400. Höfuðstöðvar félagsins eru staðsettar á Íslandi en flugrekstur á sér stað víða um heiminn.
Félagið sérhæfir sig í leigu á flugvélum ásamt áhöfnum til annara flugfélaga og gætir þess að flugleiðir viðskiptavina okkar séu starfræktar á öruggan og hagkvæman hátt.

Sérfræðingur í uppgjörum og reikningshaldi (Financial Accountant)
Flugfélagið Atlanta ehf. leitar að metnaðarfullum og lausnamiðuðum sérfræðingi í uppgjörum og reikningshaldi (Financial Accountant) til að styrkja fjármálateymi félagsins.
Starfið felur í sér ábyrgð á mánaðaruppgjörum og ársreikningum ásamt þátttöku í stafrænum umbótaverkefnum og sjálfvirknivæðingu ferla.
Um er að ræða krefjandi og fjölbreytt starf hjá rótgrónu alþjóðlegu fyrirtæki með trausta rekstrarsögu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón og ábyrgð á uppsetningu mánaðaruppgjöra og ársreikninga félagsins
- Þátttaka í stafrænni þróun, sjálfvirknivæðingu og umbótaverkefnum
- Aðkoma að greiningum og áætlanagerð
- Umsjón og ábyrgð með skýrsluskilum félagsins
- Þátttaka í fjölbreyttum verkefnum á fjármálasviði
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun á sviði viðskiptafræði með áherslu á fjármál, endurskoðun eða sambærilegt nám
- Starfsreynsla af sambærilegu starfi er skilyrði
- Áhugi á stafrænni þróun, sjálfvirknivæðingu og stöðugum umbótum
- Góð enskukunnátta í ræðu og riti
- Skipulagshæfni, nákvæm vinnubrögð og sterk samskiptafærni
Advertisement published1. October 2025
Application deadline12. October 2025
Language skills

Required

Required
Location
Hlíðasmári 3, 201 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (1)
Similar jobs (12)

Bókhald - Laun - Fjármál
Rafkaup

Framkvæmdastjóri fjármála og rekstrar
Þjóðleikhúsið

Sérfræðingur í stafrænni þróun á sölusviði
Coca-Cola á Íslandi

Uppgjörsaðili
Skattur & bókhald

Bókari
Skattur & bókhald

Sérfræðingur í fyrirtækja- og ársreikningaskrár Skattsins
Skatturinn

Strategy Manager
Icelandair

Transformation Manager
Icelandair

Sérfræðingur/viðurkenndur bókari til starfa á fjármála- og rekstrarsviði
Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili

Innkaup
Bílanaust

Bókhald
R3 Bókhald og rekstur

Corporate Development (M&A) Manager
Embla Medical | Össur