KPMG á Íslandi
KPMG á Íslandi
KPMG á Íslandi

Sérfræðingur í reikningsskilum - Akureyri

KPMG er alþjóðlegt ráðgjafarfyrirtæki sem leggur áherslu á að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu. Við bjóðum sérhæfða ráðgjöf og lausnir á sviði endurskoðunar, reikningsskila, skattskila, lögfræði og viðskiptaráðgjafar. Hjá KPMG á Íslandi starfa um 240 einstaklingar á 12 skrifstofum um land allt með fjölbreytta menntun og reynslu sem gerir okkur kleift að þjónusta viðskiptavini í einka- og opinbera geiranum af öllum stærðum og gerðum.

Sérfræðingur í reikningsskilum

KPMG á Akureyri leitar að reynslumiklum sérfræðingi í reikningsskilum til að bætast við okkar frábæra hóp á glænýrri skrifstofu okkar að Austursíðu 6. Mikill kostur ef viðkomandi hefur innsýn inn í áætlanagerð sveitarfélaga.

Dæmi um verkefni og ábyrgð:

  • Þjónusta við fyrirtæki og opinbera aðila á sviði reikningsskila og fjárhagsáætlunargerðar.
  • Reikningsskil og gerð ársreikninga.
  • Skattskil og tengd mál.
  • Ýmis ráðgjafartengd verkefni.
  • Aðrar tilfallandi greiningar og verkefni.

Hæfniskröfur:

  • Grunnnám í viðskiptafræði eða öðru námi sem nýtist nauðsynlegt.
  • Að lágmarki 2-5 ára starfsreynsla af reikningsskilum og/eða endurskoðun.
  • Góð tölvufærni og greiningarhæfni.
  • Frumkvæði, nákvæmni og öguð vinnubrögð.
  • Góð færni í íslensku og ensku, í ræðu og riti.
  • Hæfni til að vinna í teymi sem og sjálfstætt auk ríkrar þjónustulundar.

Í samræmi við markmið okkar í jafnréttismálum hvetjum við öll til að sækja um óháð kyni.

Um KPMG:

KPMG á Íslandi er hluti af alþjóðlegu ráðgjafarneti og starfrækir 12 starfsstöðvar um land allt. Um 240 sérfræðingar starfa hjá félaginu og veita þjónustu á sviði endurskoðunar, reikningsskila, skatta, lögfræði og ráðgjafar.

Við bjóðum meðal annars:

  • Fjölbreytt verkefni og tækifæri til að hafa jákvæð áhrif.
  • Heilsueflandi vinnustaður og aðgangur að líkamsræktarstyrk og samgöngustyrk.
  • Golfklúbbur með aðgengi að völlum víðs vegar um landið.
  • Fyrsta flokks mötuneyti með fjölbreyttu og hollu fæði.
  • 4 tímar á ári hjá sálfræðingi eða öðrum ráðgjöf sem styðja við andlega heilsu í gegnum Kara velferðartorg.
  • Sérstök stuðningsúrræði fyrir verðandi og nýbakaða foreldra ásamt sérstökum fæðingarorlofsstyrk.
  • Sveigjanleiki til að vinna frá mismunandi starfsstöðvum og að heiman þegar við á.
  • Einn launaður dagur á ári til sjálfboðavinnu.
  • Og margt fleira.

Umsóknarfrestur er til og með 10. maí 2026.

Umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi óskast fylltar út á heimasíðu KPMG (sækja um hér til hliðar).

Nánari upplýsingar veitir Hildur Steinþórsdóttir sérfræðingur í mannauðsmálum á [email protected]

Advertisement published27. April 2026
Application deadline10. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Austursíða 2, 603 Akureyri
Type of work
Professions
Job Tags