Kerecis
Kerecis
Kerecis

Sérfræðingur í skráningarmálum (Regulatory Affairs Specialist)

Sérfræðingur í skráningarmálum er mikilvægur hluti af þróunarsviði og styður við vöxt Kerecis. Sérfræðingurinn vinnur að nýskráningum, og þar með áætlar reglugerðarstefnu fyrirtækisins fyrir nýjar vörur og markaði. Starfið felur í sér skrif á tækniskjölum, ráðgjöf í tengslum við þróunarverkefni og samantekt skráningargagna fyrir nýjar vörur. Kostur er að hafa reynslu af EU-MDR eða 510k.

Kerecis er það fyrirtæki sem vex hraðast í heiminum á sviði meðferðar á vefjaskaða og byggir tækni sína á hagnýtingu á roði og fitusýrum. Lækningavörur Kerecis eru notaðar til meðhöndlunar á margskonar líkamsskaða; m.a. á skurðsárum, þrálátum sárum, brunasárum, munnholssárum sem og til að flýta fyrir gróanda og að styrkja innvortis vef eftir skurðaðgerðir og slys.

Um 600 starfsmenn starfa hjá fyrirtækinu á Ísafirði, í Reykjavík, Þýskalandi og í Bandaríkjunum.

Sáraroðið Kerecis á þátt í bata þúsunda einstaklinga um allan heim árlega.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Undirbúa og senda inn 510(k) umsóknir til FDA
  • Skrifa tækniskjöl
  • Tekur þátt í þróunarverkefnum
  • Samvinna með klínískum sérfræðingum
  • Þekking á reglugerðum varðandi skráningu lækningatækja

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólagráða á viðeigandi vísindasviði (verkfræði eða skyld svið)
  • Reynsla af skráningarvinnu á lækningavörum er kostur
  • Góð samskiptahæfni
Advertisement published21. July 2025
Application deadline10. August 2025
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Laugavegur 77, 101 Reykjavík
Sundstræti 38, 400 Ísafjörður
Type of work
Professions
Job Tags