Coripharma ehf.
Coripharma ehf.
Coripharma ehf.

Sérfræðingur í gæðarannsóknardeild

Gæðarannsóknadeild leitar að nýjum sérfræðing í sinn hóp. Mikilvægt er að sérfræðingur hafi gaman af vinnu á rannsóknarstofu, sé nákvæmur, skipulagður og hafi getu til að skila af sér niðurstöðum í takt við tímalínur.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Mælingar á hráefnum (til dæmis HPLC, GC og PSD, ásamt fleiri mælingum)
  • Útreikningar og frágangur á rannsóknarniðurstöðum
  • Kvarðanir og eftirlit á tækjabúnaði rannsóknarstofunnar
  • Önnur almenn störf á rannsóknarstofunum

Menntunar- og hæfniskröfur

  • B.Sc. í raunvísindum
  • Reynsla af HPLC, GC eða PSD mælingum er kostur
  • Reynsla af vinnu í GMP gæðakerfum er kostur
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Geta til að tileinka sér nákvæm, öguð og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð tölvukunnátta
  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Coripharma er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki með um 200 starfsmenn sem byggir á traustum grunni lyfjaþróunar og framleiðslu á Íslandi. Félagið sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og útflutningi samheitalyfja ásamt því að sinna verktökuframleiðslu fyrir önnur lyfjafyrirtæki.

Frá því að félagið hóf starfsemi árið 2018 hefur það hafið framleiðslu á 22 lyfjum og er með 21 ný lyf í þróun. Nánari upplýsingar um Coripharma má finna á www.coripharma.is

Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.

Advertisement published19. November 2024
Application deadline1. December 2024
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
EnglishEnglish
Required
Very good
Location
Reykjavíkurvegur 76, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Meticulousness
Professions
Job Tags